fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Sefur þú of mikið? – Það er ekki gott fyrir heilann

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 14:30

Ætli hann sofi of mikið? Mynd:iStock

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heldur þú að mikill svefn sé góður fyrir heilann? Ef svo er, þá skaltu hugsa þig um því niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að svefn lengri en níu klukkustundir hefur neikvæð áhrif á andlega færni. Þetta á sérstaklega við um fólk sem glímir við þunglyndi.

Bandarískir vísindamenn rannsökuðu svefnvenjur tæplega 2.000 manns á aldrinum 27 til 85 ára. Þeir sem sváfu lengur en níu klukkustundir stóðu sig verr á minnisprófum og þegar kom að skipulagningu og rúmfræðilegri skynjun.

Fólk, sem sefur mikið, skýrir oft frá einkennum þunglyndi. Svefn getur því verið áhættuþáttur fyrir andlega afturför hjá fólki sem glímir við þunglyndi að sögn Vanessa Young, aðalhöfundar rannsóknarinnar.

Vísindamennirnir komust að því að neikvæð áhrif langs svefns voru mest hjá fólki með þunglyndiseinkenni, óháð því hvort það notaði þunglyndislyf.

Það var aðeins fólk, sem tók þunglyndislyf án þess að sýna þunglyndiseinkenni, sem fann ekki fyrir neinum áhrifum af að sofa lengi.

Fullorðnum er almennt ráðlagt að sofa í sjö til níu klukkustundir á sólarhring. Frávik í báðar áttir hafa þau áhrif að athyglisgáfan minnkar, minnisvandamál gera vart við sig og það verður erfiðara að skipuleggja hluti og hafa stjórn á hvötum sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Í gær

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag