Pressan

Lögreglumaður kom að látnum manni – Það sem gerðist í kjölfarið vakti miklar spurningar

Mynd
Brian og húsið sem hann gerði upp. Samsett mynd.

Lögreglumaður hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa tekið hús látins manns ófrjálsri hendi, misnotað persónuupplýsingar hans og staðið í umfangsmiklum endurbótum á eigninni í fjögur ár. Málið komst upp eftir að lögreglumaðurinn höfðaði mál gegn réttmætum erfingjum mannsins og krafðist endurgreiðslu fyrir framkvæmdirnar.

Brian Louis Sguros, 35 ára lögreglumaður hjá lögreglunni í Lauderhill í Flórída í Bandaríkjunum, var handtekinn í gær og er meðal annars sakaður um svik og skjalafals í tengslum við málið.

Sagðist vera vinur hins látna

Samkvæmt fréttamiðlinum WPLG var Sguros annar tveggja lögreglumanna sem komu á heimili Dennis Ionis West þann 11. júlí 2022. Nágranni hafði hringt í neyðarlínuna því að hann hafði ekki séð West í rúma viku.

West, sem var 71 árs, fannst látinn við inngang heimilis síns, eftir krufningu kom í ljós að andlátið mátti rekja til hjarta- og æðasjúkdóms.

Við rannsókn á andláti West sagðist Sguros hafa verið vinur hans og bauðst til að sjá um útförina, sagði hann við réttarmeinafræðingum að West ætti enga lifandi ættingja. Ekkert bendir til að þeir hafi þekkst áður. Nokkrum vikum síðar, hinn 1. ágúst 2022, tók Sguros húsið til umráða án þess að hafa til þess neitt tilkall. Hann hefur nú viðurkennt þann hluta fyrir dómi. 

Segist hafa varið rúmum 30 milljónum króna í endurbætur

Sguros heldur því fram að hann hafi varið meira en 214.000 Bandaríkjadölum, eða rúmlega 30 milljónum íslenskra króna, í endurbætur á húsinu. Að sögn hans hafi markmiðið verið að vernda eignina gegn glæpastarfsemi og ólöglegri búsetu fólks í húsinu.

Meðal framkvæmda var að fjarlægja fúna viðarhluta og endurbæta veggi. Endurbæturnar eru sagðar hafa aukið verðmæti eignarinnar þannig að það nam um 500.000 Bandaríkjadölum, eða um 70 milljónum íslenskra króna.

Sguros er hins vegar grunaður um að hafa misnotað persónuupplýsingar West til að afla byggingarleyfa vegna framkvæmda við að skipta um glugga og hurðir, sem kostuðu um 8.000 dali.

Í skjölunum var West skráður sem eigandi hússins og gefið í skyn að hann væri enn á lífi. Þar voru einnig afrit af ökuskírteini hans og undirskrift. Fyrirtæki sem Sguros réð til að vinna hluta framkvæmdanna taldi að West væri enn á lífi. Þá er lögreglumaðurinn líka sakaður um að hafa falsað undirskrift og opinberan stimpil í ágúst 2024. 

Grunaður um að misnota aðgang lögreglunnar að upplýsingum

Sguros er einnig sakaður um að hafa nýtt aðstöðu sína sem lögreglumaður til að afla persónuupplýsinga um West. Hann hafi leitað nafni hins látna í tölvukerfum lögreglunnar ítrekað til að nálgast upplýsingar úr ökutækjaskrá og um tryggingar. 

Málið komst upp þegar fasteignafélagið Equinox Realty Holding hafði samband við réttmæta erfingja West, sem höfðu áhuga á að taka við húsinu. Sguros samþykkti að afhenda þeim lyklana en höfðaði í febrúar 2026 einkamál þar sem hann krafðist endurgreiðslu fyrir umfangsmiklar endurbætur á eigninni.

Lögreglunni í Lauderhill barst kvörtun eftir að lögmaður fasteignafélagsins komst að því að Sguros væri grunaður um að hafa misnotað starfsaðstöðu sína til að afla upplýsinga um West. Sguros hefur starfað hjá lögreglunni í Lauderhill frá mars 2021. Hann var skikkaður í leyfi í júlí síðastliðnum.

Samkvæmt upplýsingum úr fangelsisskrám er Sguros vistaður í fangelsi Broward-sýslu.

„Við berum mikla virðingu fyrir lögreglumönnum vegna þess að þeir sverja þess eið að vernda almenning,“ sagði Marty Kiar, fasteignamatsstjóri Broward-sýslu, í samtali við WPLG.

„Þetta mál er sérstaklega alvarlegt vegna þess að lögreglumaðurinn er sakaður um að hafa misnotað stöðu sína til að svíkja almenning.“