Raunveruleikastjarnan Darrell Sheets skildi eftir skilaboð til þeirra sem lögðu hann í einelti á samfélagsmiðlum áður en hann tók eigið líf, þetta kemur fram í lögregluskýrslu.
Sheets lést í apríl síðastliðnum 67 ára að aldri en hann er þekktur fyrir að koma fram í rúmlega 160 þáttum af Storage Wars á árunum 2010 til 2021, hlaut hann viðurnefnið The Gambler. Fyrir þá sem ekki þekkja til snerust þættirnir um að kaupa yfirgefnar geymslur, gramsa í dótinu og sjá hvort hægt sé að koma út í gróða.
Nú hefur lögregluskýrslan verið afhjúpuð, kemur fram að hann hafi látist af völdum byssuskots í höfuðið. Nærri þar sem hann lést var miði sem á stóð:
„Ég þoli ekki meira einelti á Facebook, farðu til fjandans [afmáð]“.
Samkvæmt lögreglu glímdi Sheets við mikið álag, svefnleysi og átti hann í erfiðum samskiptum við fjölskyldu sína.
Hann bjó með unnustu sinni sem hafði beðið hann um að fara að sofa skömmu áður en hann lést. Höfðu þau áður átt í rifrildi sem tengdist heimsókn frá syni hans, mun hann ekki hafa viljað vera einn með honum. Sonurinn, Brandon Sheets, sendi frá sér tilkynningu á Instagram sem segir:
„Hjarta mitt er brotið. Ég elska þig pabbi.“
Hér má sjá myndband af bestu augnablikum Sheets í Storage Wars:
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.