Pressan

Myndir þú þora að fara upp þessar tröppur?

Mynd
Þorir þú?

Á hinni afskekktu eyju St. Helena, sem er í sunnanverðu Atlantshafi, eru tröppur sem eru satt að segja ansi brattar. Þær eru 669 þrep og hallinn er 41 gráða. Það má því segja að þær séu nánast lóðréttar.

Tröppurnar heita Jacob‘s Ladder og voru gerðar 1829 en þá voru þær einskonar brautarteinar þar sem hestar drógu þunga vagna upp á fjallstopinn yfir bænum Jamestown.

Þegar teinarnir voru fjarlægðir voru tröppurnar skildar eftir og urðu síðan þekktasta kennileiti eyjunnar.

Mynd

Margir ferðamenn telja í sig kjark og fara upp tröppurnar en flestir þeirra eru mun lengur á leiðinni en þeir reiknuðu með.

Það er örugglega erfitt að fara upp, sérstaklega fyrir lofthrætt fólk, en ferðin niður er alveg örugglega ekki auðveldari og eins gott að hnén séu traust.

Frá fjallstoppinum er frábært útsýni yfir Jamestown og Atlantshafið.

 

Heimamenn nota tröppurnar til að reyna á sig en ferðamenn líta á þær sem áskorun sem þarf að sigrast á. Þeir sem ná að komast upp, og niður, fá viðurkenningu frá ferðamannaráði Jamestown.