fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 07:31

Trékisturnar eru ekki brenndar. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Danmörku er mjög algengt að fólk sé brennt eftir andlátið. Raunar lætur meirihluti Dana brenna sig. Nú sækir ný og umhverfisvæn lausn á varðandi líkbrennsluna því sífellt fleiri láta brenna sig í pappaöskju í stað timburkistu.

TV2 segir að um tíundi hver sé nú brenndur í pappaöskju í stað trékistu. Líkið er í hefðbundinni trékistu þegar útförin fer fram. Sú kista er síðan notuð aftur.

Venjulega eru um 50 kíló af timbri brennd við hverja líkbrennslu en með því að líkið sé sett í pappaöskju eru það aðeins sjö kíló af pappa sem enda í ofninum með líkinu.

Það er því mikill ávinningur út frá umhverfissjónarmiðum að haga líkbrennslunni með þessum hætti.

Við útförina er líkið í pappaöskjunni, sem er ofan í hefðbundinni kistu. Þegar komið er í líkbrennsluna er ytra byrðið tekið af. Pappaaskjan getur tekið við allt að 125 kílóa líki og í henni eru dýna, koddi og teppi eins og í hefðbundinni kistu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Í gær

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kaþólska kirkjan í Washington rekur særingamann vegna ummæla hans um fljúgandi furðuhluti

Kaþólska kirkjan í Washington rekur særingamann vegna ummæla hans um fljúgandi furðuhluti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína