
Busby var líflátinn með banvænni lyfjagjöf í ríkisfangelsinu í Huntsville eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði á síðustu stundu kröfum lögmanna hans um að stöðva aftökuna.
Byggðu þeir mál sitt meðal annars á því að sérfræðingur sem ráðinn var af embætti saksóknara hefði komist að þeirri niðurstöðu að Busby væri með þroskahömlun.
Busby var dæmdur til dauða fyrir morðið á Lauru Lee Crane, 77 ára fyrrverandi prófessor við Texas Christian University. Samkvæmt saksóknurum var Crane rænt af bílastæði við matvöruverslun í Fort Worth árið 2004. Hún var síðar skilin eftir í skotti bíls síns með límband vafið þétt yfir andlit sitt með þeim afleiðingum að hún kafnaði.
Busby var handtekinn í Oklahoma City þar sem hann ók bíl konunnar og vísaði lögreglu síðar á lík hennar skammt frá ríkismörkum Texas og Oklahoma. Kona sem var með Busby þegar Lauru var rænt, Kathleen Latimer, afplánar lífstíðardóm fyrir morðið.
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði árið 2002 að óheimilt væri að taka fólk með þroskahömlun af lífi. Í frétt AP kemur þó fram að ríkjum hafi verið veitt svigrúm til að meta hvernig slíkt er skilgreint og staðfest.
Embætti saksóknara í Tarrant-sýslu hafði áður lagt til að dauðadómur Busbys yrði mildaður í lífstíðarfangelsi, en dómarinn í málinu hafnaði því og staðfesti dauðadóminn árið 2023.
Í lokaorðum sínum bað Busby fjölskyldu fórnarlambsins ítrekað afsökunar og sagði að Crane hefði verið yndisleg kona.
Fjórir fangar hafa nú verið teknir af lífi í Texas á þessu ári og tólf í það heila í Bandaríkjunum.