
Tónlistarmaðurinn D4vd hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni, morð að yfirlögðu ráði og límlestingu á líki. Margir hafa beðið ákærunnar með eftirvæntingu en sjö mánuðir eru síðan líkamsleifar hinnar 14 ára gömlu Celeste Rivas Hernandez fundust við ljótan leik í Teslu-bifreið söngvarans.
Það var í september sem lögreglu barst símtal frá starfsmanni bílageymslu sem hýsir bifreiðar sem gerðar hafa verið upptækar. Starfsmaðurinn lýsti ógeðsfelldum óþef sem barst frá Teslu-bifreið og óttaðist hann hið versta. Sá grunur starfsmannsins var staðfestur þegar lögreglu bar að garði og hún fann í skotti bifreiðarinnar tvo ruslapoka. Annar geymdi rotnandi búk og höfuð unglingsstúlku og í hinum pokanum mátti finna útlimi hennar. Talið er að stúlkan hafi legið þarna látin mánuðum saman. Fljótlega tókst að rekja bifreiðina til tónlistarmannsins D4vd sem heitir réttu nafni David Burke, en vegna ástands líksins reyndist bæði erfitt að bera kennsl á stúlkuna og einnig á dánarorsök hennar.
Fram hefur komið að Celeste hafði í raun verið saknað frá árinu 2024, eða frá því að hún strauk frá fjölskyldu sinni. Aðilar sem þekkja til fjölskyldunnar segja að stúlkan hafi á þessum tíma talað um kærasta að nafni David sem væri eldri en hún, en flestum þykir augljóst að um tónlistarmanninn hafi verið að ræða. Sumir heimildarmenn fjölmiðla lýsa því svo að ástarsamband stúlkunnar og tónlistarmannsins hafi verið illa falið leyndarmál, en tónlistarmaðurinn er um 8 árum eldri en stúlkan.
Lögfróðir veltu því snemma fyrir sér hvers vegna tónlistarmaðurinn fékk áfram að ganga laus. Væri hann saklaus af morðinu hefði hann í það minnsta gerst sekur um barnaníð. Sérfræðingar sem CNN leitaði til vegna málsins segja að margt hafi flækt rannsókn lögreglu. Líkið var verulega rotið þegar það fannst og því erfitt að leiða í ljós dánarorsök og eins erfitt að finna sönnunargögn. Auk þess hafa vitni í málinu verið ósamvinnuþýð. Loks ákvað ákæruvaldið að fara þá leið að skipa sérstakan ákærukviðdóm, en þá er kviðdómendum fengið að skoða sönnunargögn, kalla fram vitni og annað slíkt til að sjá hvort tilefni sé til ákæru.
Þrátt fyrir ákærukviðdóminn ákvað lögregla að handtaka tónlistarmanninn fyrir helgi og það var svo embætti saksóknara sem ákærði án aðkomu ákærukviðdómsins. Sérfræðingarnir segja að stundum sé ákveðið að fara þessa leið þegar vitni í málum eru ósamvinnuþýð. Þegar vitni er kallað fyrir ákærukviðdóm þurfa þau að fara með drengskaparheit. Verði þau uppvís að lygum gerast þau sek um meinsæri. Vitni geta ekki skorast undan því að koma fyrir ákærukviðdóminn.
„Ég held að tilgangurinn hafi verið að fá þau til að gefa eiðsvarinn vitnisburð að viðlögðu meinsæri, til þess að þegar þau beri vitni við aðalmeðferð geti þau ekki breytt framburði sínum,“ segir Rahmani sem er fyrrverandi saksóknari.
„Þetta er mikill kostur fyrir saksóknarana, sérstaklega þegar þeir vilja fá innsýn í hvað vitnið muni segja fyrir dómi. Ég held að betri ástæðan, sem eigi líklega við í þessu máli, sé að þú vilt negla niður vitnisburð þeirra.“
Þessi aðferð gæti þó komið ákæruvaldinu í koll. Ef misræmis gætir í framburði vitna hjá ákærukviðdómi annars vegar og við aðalmeðferð hins vegar getur verjandi nýtt slíkt til að grafa undan trúverðugleika vitnanna.
CNN nefnir að fjölskylda tónlistarmannsins hafi reynt að víkja sér undan vitnaskyldu, sem og vinir tónlistarmannsins og samstarfsfélagar. Kalla þurfti til lögreglu í janúar til að handtaka einn vin tónlistarmannsins til að koma honum í skýrslugjöf.
Rahmani tekur fram að það sé mikilvægast í málum sem þessum að undirbúa ákæruna vel þannig að málið sé líklegt til sakfellis. Stundum taki það lengri tíma en ella. Oftast sé best að flýta sér hægt, en hér sé um mál að ræða sem hefur vakið mikla athygli og óhug.
Aðrir sérfræðingar segja að það hafi ekki komið þeim á óvart að D4vd hafi fyrst núna verið handtekinn. Málið sé furðulegt og því eðlilegt að ákæruvaldið staldri aðeins við til að meta hvað sé í gangi. Hér sé um alvarlegar sakir að ræða og gæti farið svo að tónlistarmaðurinn verði dæmdur til dauða. Það skipti því öllu að ákæruvaldið sé með sterkt mál í höndunum.
Til að taka þetta saman: Rotnandi lík flækti rannsóknina ásamt ósamvinnuþýðum vitnum.