fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Stefnuskrá dularfulla njósnafyrirtækisins vekur óhug – „Það verður að stöðva Palantir“

Pressan
Mánudaginn 20. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæknifyrirtækið Palantir birti á dögunum eins konar stefnuskrá (e. manifesto) á samfélagsmiðlum, en stefnuskráin birtist í bókinni The Techological Republic: Hard Power, Soft Belief, and the Future of the West eftir Alexander C. Karp, forstjóra Palantir, og Nicholas W. Zamiska, yfirlögfræðing fyrirtækisins. Þar lýsir fyrirtækið sinni sýn á framtíðina og hvað þurfi að breytast. Er því meðal annars haldið fram að framtíð hernaðar sé gervigreind og að spurningin sé ekki hvort gervigreindarvopn verði smíðuð heldur hvenær og af hverjum.

Palantir er hugbúnaðarfyrirtæki sem nýlega hefur landað stórum samningum við Bandaríkjaher, lögregluna í New York-borg og innflytjenda- og tollaeftirlitið (ICE). Fyrirtækið var stofnað árið 2003 af frumkvöðlum úr Kísildalnum, þar með talið Peter Thiel og Alexander C. Karp. Á síðasta ári varaði fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins við því að Palantir væri að framleiða mjög hátæknilegan og fágaðan njósnabúnað sem og gervigreindartól sem þá þegar væru komin í notkun í stríðinu á Gaza og í aðgerðum innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) gegn ólöglegum innflytjendum.

Thiel og Karp trúa á yfirburði hvíta vestræna mannsins, trúa ekki á lýðræði og trúa því að tæknigeirinn eigi að stjórna heiminum án nokkurs aðhalds eða takmarkana. Palantir er einn stærsti einkarekni þjónustuaðili bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar (NSA) og leyniþjónustunnar CIA.

Sjá einnig: Dularfulla njósnafyrirtækið sem hefur farið með himinskautum síðan Trump tók við völdum – Komið til að trufla, hræða og stundum til að drepa

Herskylda og öld gervigreindar

Stefnuskrá Palantirs, sem birtist fyrst í áðurnefndri bók sem kom út á síðasta ári, hefur verið líkt við ræðu frá illmenni úr teiknimyndasögum.

Þeir Karp og Zamiska halda því fram að tæknifyrirtækjunum í Kísildalnum beri siðferðisleg skylda til að taka þátt í vörnum Bandaríkjanna, enda hafi Bandaríkin greitt götu fyrirtækjanna. Þeir félagar halda því fram að Bandaríkin séu höfuðstöðvar framfara í heiminum og hafi vald þeirra og hernaðarmáttur stuðlað að fordæmalausum heimsfriði í tæpa öld. Palantir telur að þessum tíma sé nú lokið. Kjarnorkuöldinni sé lokið og nú muni fælingarmáttur kjarnavopna víkja fyrir fælingarmætti gervigreindarvopna. Spurningin sé ekki hvort slík vopn verði þróuð heldur hvenær og af hverjum. Óvinaþjónar Bandaríkjanna muni ekki hika við slíka gervigreindarvæðingu og tími mjúka valdsins og diplómata sé liðinn. Óvinir muni ekki staldra við hernaðarbrölt til að taka þátt í leikrænum friðarviðræðum heldur muni halda sinni þróun áfram. Hernaðarvald framtíðarinnar muni byggja á hugbúnaði og gervigreind. Mjúka valdið þurfi að víkja fyrir því harða sem muni byggja á hugbúnaði.

Svo fara Palantir-félagar mörgum orðum um dómhörku almennings í garð opinberra persóna. Þórðargleði í slaufunarmenningunni sé of mikil og fæli hæft fólk frá stjórnmálum og opinberri umræðu. Skortur á fyrirgefningu og samkennd muni leiða til þess að almenningur sitji uppi með valdhafa sem skortir allt bit. Metnaðarfullir milljarðamæringar á borð við Elon Musk séu hafðir að háði og spotti fyrir byltingarkenndar hugmyndir. Opinberum manneskjum verði að vera frjálst að segja hluti, jafnvel þó að þær segi stundum eitthvað umdeilanlegt eða rangt. Það sé svo að þeir sem aldrei segja neitt rangt séu sjaldnast að fara að segja nokkuð markvert.

Hafna þurfi inngildingu sem byggi á þeim forsendum að allir menningarheimar séu jafnir. Raunveruleikinn sé sá að sum samfélög hafi stuðlað að gífurlegum framförum á meðan önnur standa fyrir afturhald.

Fyrirtækið talar eins fyrir almennri herskyldu enda ætti hernaður ekki að vera í höndum sjálfboðaliða svo að þegar og ef næsta stríð verður háð deili allir áhættunni og kostnaðinum. Nauðsynlegt sé að afturkalla þau mistök sem gerð voru við lok seinni heimsstyrjaldarinnar þegar tennurnar voru dregnar úr hernaðarmætti Þýskalands. Evrópa sé nú að gjalda þessi mistök dýrum dómi. Það sama eigi við um Japan.

Loks segir Palantir að stöðva þurfi ofríki Apple og smáforritanna. Vissulega hafi iPhone-síminn verið byltingarkennd uppfinning á sínum tíma en hafi nú snúist upp í andhverfu sína og hamli nýsköpun. Á sama tíma þurfi að berjast gegn óumburðarlyndi gagnvart trúarbrögðum.

Hagfræðiprófessorinn Yansi Varoufakis segir stefnuskrána ekkert annað en hrylling. Palantir sé þarna að lýsa því yfir að siðferði sé fyrir aumingja og að Vesturlönd þurfi að kaupa meira af morðtækni frá Palantir. Stöðva þurfi markaðsráðandi stöðu Apple svo Palantir fái meira pláss. Stjórnmálin eigi að vera laus við alla samkennd og stjórnmálamenn hafnir yfir gagnrýni. Loks sé Palantir að tala gegn inngildingu eða með öðrum orðum gegn þeim sem eru ekki hvítir karlmenn.

Fleiri hafa gagnrýnt stefnuskránna og segja hana í raun eins konar réttlætingu á því að Palantir framleiði gjöreyðingarvopn og búnað sem njósnar um almenning, og það skuggalegasta sé að fyrirtækið sé nú þegar komið í samstarf við ríkisstjórn Bandaríkjanna sem og víðar. Fyrirtækið tali fyrir því að Þýskaland og Japan fái að auka hernaðarmátt sinn, bara svo Palantir geti selt þeim gervigreindarvopn. Einn segir hreinlega: „Það verður að stöðva Palantir“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Fyrir 2 dögum

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna