fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Pressan

Bandarískur þingmaður: Færi allt á hliðina ef þetta yrði opinberað

Pressan
Föstudaginn 3. apríl 2026 19:00

Tim Burchett. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski þingmaðurinn Tim Burchett segir að almenningur í Bandaríkjunum eigi rétt á að fá að vita að hverju stjórnvöld hafa komist varðandi mögulegt líf í geimnum.

Að hans sögn gætu þær upplýsingar sem honum hafa verið kynntar haft veruleg áhrif á samfélagið ef þær yrðu gerðar opinberar. Greint er frá þessu í New York Post, sem vísar til viðtals Newsmax við þingmanninn.

Burchett, sem situr í verkefnahópi fulltrúadeildarinnar um afléttingu leyndar af alríkisgögnum, sagði í viðtalinu að hann hefði lengi talað fyrir fullri upplýsingagjöf í þessum málum.

„Almenningur á rétt á að vita þetta,“ sagði hann og bætti við að ef það sem hann hefði sjálfur fengið kynningu á yrði birt opinberlega myndi það valda miklum áhyggjum meðal almennings.

Þingmaðurinn sagði að fyrir skömmu hefði honum verið kynnt mál sem tengdist lífi í geimnum. Ef upplýsingarnar kæmu fram opinberlega gæti það haft mikil áhrif á almenning og Bandaríkin „farið úr skorðum“ eins og hann orðaði það.

Hann sagði jafnframt að slíkar upplýsingar hefðu ítrekað verið faldar fyrir almenningi.

Ummæli Burchetts koma í kjölfar yfirlýsinga fyrrverandi þingmannsins Matt Gaetz, sem sagðist á dögunum hafa vitneskju um meintar tilraunir sem tengdust blöndun manna og geimvera. Burchett vildi ekki tjá sig um þær fullyrðingar og vísaði til þess að hann væri enn starfandi þingmaður.

Þá ræddi Burchett einnig um dularfull dauðsföll meðal vísindamanna og sérfræðinga sem tengjast rannsóknum á þessu sviði. Hann nefndi þar meðal annars hvarf fyrrverandi hershöfðingjans William McCasland og eldflaugaverkfræðingsins Monicu Reza.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Náðu stjórn á frystinum – Þessu skaltu henda

Náðu stjórn á frystinum – Þessu skaltu henda
Pressan
Í gær

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum
Pressan
Í gær

Svona oft þarftu að endurræsa símann þinn til að halda honum í toppstandi

Svona oft þarftu að endurræsa símann þinn til að halda honum í toppstandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Færðu sokkaför á fæturna? – Þetta er líkaminn að reyna að segja þér

Færðu sokkaför á fæturna? – Þetta er líkaminn að reyna að segja þér
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfélag með nýjung – Kojur

Flugfélag með nýjung – Kojur