fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Pressan

Svo sannarlega eitt af dularfyllstu málunum segir lögreglan

Pressan
Fimmtudaginn 19. júní 2025 07:00

Maðurinn var með þennan hring. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

263 dögum eftir að karlmaður fannst látinn í kajak var hann jarðsettur í ómerktri gröf því lögreglunni hefur ekki tekist að bera kennsl á líkið. Segir lögreglan að þetta sé svo sannarlega eitt af dularfyllstu málunum sem hún hefur fengist við.

Það var í ágúst á síðasta ári sem lífvana maður fannst sitjandi í uppblásnum kajak, sem var á reki undan Glænø við Skælskør í Danmörku.

Nú er búið að jarðsetja hann í gröf hinna óþekktu því ekki er vitað hver hann var. Berlingske skýrir frá þessu.

Lögreglan hefur leitað að ættingjum mannsins bæði í Danmörku og utanlands en án árangurs. Það kom því að þeirri stund að maðurinn væri jarðsettur í gröf hinna óþekktu.

Talsmaður lögreglunnar sagði í samtali við Berlingske að það sé mjög sjaldgæft að enginn sakni fólks en það sé tilfellið í þessu máli. Þetta sé eitt dularfyllsta málið sem lögreglan hafi fengist við.

Það var siglingamaður sem kom auka á manninn sitjandi í kajaknum og náði að draga hann að landi. Líkami hans var enn heitur en þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn úrskurðaður látinn.

Það lá fljótlega ljóst fyrir að ekkert saknæmt hafði átt sér stað en spurningin sem brann á lögreglunni var hver maður væri.

Hann var ekki með nein skilríki á sér eða önnur persónuleg skjöl og hann var heldur ekki með síma á sér.

Lögreglan leitaði ítrekað til almennings um upplýsingar og birti nákvæmar lýsingar á manninum og eigum hans, meðal annars á gullhring, sérstöku hálsmeni og Seiko úri. Einnig birti hún mynd af kajak eins og maðurinn fannst í. Hann er af þýskri gerð sem er ekki seld í Danmörku. En þetta skilaði engum árangri frekar en aðrar aðgerðir lögreglunnar.

Einnig var leitað til alþjóðalögreglunnar Interpol og DNA úr manninum var borið saman við alþjóðlega gagnagrunna sem og myndir af tönnum mannsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þrjú merki um að hún hafi áhuga á þér

Þrjú merki um að hún hafi áhuga á þér