fbpx
Föstudagur 18.júlí 2025
Pressan

Súkkulaðineysla getur aukið kynhvöt karla og bætt frammistöðuna í kynlífinu

Pressan
Þriðjudaginn 17. júní 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vissir þú að súkkulaði getur verið lostavekjandi? Í því eru efni á borð við trýptófan, sem er eitt grunnefnanna í serótóníni sem tengist kynferðislegri örvun. Annað efni sem er í súkkulaði er phenylethylamine sem er örvandi efni, skylt amfetamíni, sem losnar úr læðingi þegar fólk verður ástfangið.

Niðurstöður rannsóknar sýna að neysla súkkulaðis getur aukið kynhvöt fólks og bætt frammistöðu karla í kynlífinu. Vísindamenn sprautuðu prótíni, sem er í súkkulaði, í karla og fengu þá síðan til að horfa á klám. Þetta hafði þau áhrif að þeir örvuðust meira við klámáhorfið en ef þeir fengu ekki prótín.

Það var prótínið kisspeptin sem vísindamenn hjá Imperial College London sprautuðu í mennina. Niðurstaða þeirra var að efnið breytir virkni ákveðinna heilastöðva sem eru taldar stýra kynhvötinni.

Fjallað var um málið á vef Science Daily. Alexander Comninos, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði að niðurstöðurnar geti orðið til að opna fyrir notkun kisspeptin í framtíðinni gegn lítilli kynhvöt sem geti haft alvarlegar afleiðingar á sambönd fólks.

Það verður þó að taka niðurstöðunum með þeim fyrirvara að aðeins 29 manns tóku þátt í henni og því er ekki hægt að alhæfa um niðurstöðurnar. Stærri rannsókn þarf að koma til áður en hægt verður að fullyrða hvort þetta eigi við rök að styðjast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Mætti alblóðugur á lögreglustöð eftir að hafa myrt tengdamóður sína og játaði – Samt var hann sýknaður með ævintýralegum hætti

Mætti alblóðugur á lögreglustöð eftir að hafa myrt tengdamóður sína og játaði – Samt var hann sýknaður með ævintýralegum hætti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump reynir að róa brjálaða MAGA-liða – „Sóum ekki tíma og orku í Jeffrey Epstein, einhvern sem öllum er sama um“ 

Trump reynir að róa brjálaða MAGA-liða – „Sóum ekki tíma og orku í Jeffrey Epstein, einhvern sem öllum er sama um“ 
Pressan
Fyrir 1 viku

Hávært rifrildi um borð eftir að „Karen“ tróðst fram fyrir- „Haltu kjafti!“

Hávært rifrildi um borð eftir að „Karen“ tróðst fram fyrir- „Haltu kjafti!“
Pressan
Fyrir 1 viku

Hringdi á neyðarlínuna eftir að 6 ára systir hennar fann lík foreldra þeirra – Rannsókn leiddi í ljós fjölskylduharmleik

Hringdi á neyðarlínuna eftir að 6 ára systir hennar fann lík foreldra þeirra – Rannsókn leiddi í ljós fjölskylduharmleik
Pressan
Fyrir 1 viku

Rannsókn sýnir samhengi á milli kaffidrykkju og öldrunar

Rannsókn sýnir samhengi á milli kaffidrykkju og öldrunar
Pressan
Fyrir 1 viku

Las sér til um tannlækningar á Internetinu og opnaði tannlæknastofu

Las sér til um tannlækningar á Internetinu og opnaði tannlæknastofu