fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Pressan

Víðar nærbuxur – Betra sæði

Pressan
Þriðjudaginn 17. júní 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árum saman hefur karlmönnum, sem vilja eignast börn, verið ráðlagt að hætta að ganga í þröngum nærbuxum og nota víðari í staðinn. Þetta var gert út frá þeirri hugmynd að hitinn sem myndast vegna þröngra nærbuxna skaði sæðisfrumurnar.

Vísindamenn við Harvard TH Chan School of Public Health rannsökuðu málið að sögn BBC og komust að þeirri niðurstöðu að þetta gamla ráð er hárrétt.. Þeir rannsökuðu 656 karlmenn og komust að þeirri niðurstöðu að þeir sem notuðu víðar nærbuxur, boxerbuxur, voru með 17 prósent fleiri sæðisfrumur og 33 prósent fleiri syndandi sæðisfrumur en þeir sem voru í þröngum nærbuxum.

Þátttakendurnir voru allir sjúklingar frjósemisstofu en fjöldi sæðisfrumna þeirra var innan eðlilegra marka. Í rannsókninni var tekið tillit til annarra þátta sem geta haft áhrif á sæðið, þar á meðal aldur, þyngd, reykingar og heit böð.

Vísindamennirnir komust einnig að þeirri niðurstöðu að karlar, sem notuðu víðar nærbuxur, voru með minna af ákveðnu hormóni í heilanum en þetta hormón segir eistunum að framleiða meira sæði. Talið er að þetta hormón sé aðferð líkamans til að bregðast við hitanum við eistun.

Á undanförnum 25 árum hafa gæði sæðis karla á vesturlöndum minnkað um 50-60 prósent. Vísindamenn segja að umhverfisáhrif séu hugsanlega ein orsök þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna skaltu alltaf sofa í sokkum

Þess vegna skaltu alltaf sofa í sokkum