Limur hans er 36,5 cm á lengd og ummál hans er 21,6 cm. Þetta hljómar ótrúlega en þetta hefur verið staðfest með mælingum.
Barr segir að líf hans hafi ekki alltaf verið auðvelt þegar kemur að kynlífi. Í samtali við Dr. Rena Malik sagði hann að „fyrsta skiptið“ hans hafi tæknilega séð aldrei átt sér stað.
„Við reyndum en komust að því að þetta var ópraktískt líkamlega séð. Hún vildi bara að fólk héldi að við hefðum gert það, einhverskonar montstatus,“ sagði hann.
Hið raunverulega „fyrsta skipti“ átti sér ekki stað fyrr en löngu síðar. „Það gekk ekki vel. Ég varð að fara á sjúkrahús. Ekki beinlínis frábært,“ sagði hann.
Dr. Malik sagði í viðtalinu að leggöng kvenna séu að meðaltali 9 cm þegar konan er ekki kynferðislega örvuð og þrátt fyrir að kona sé kynferðislega örvuð, þá sé ósennilegt að hún geti tekið við getnaðarlim af þeirri stærð sem prýðir Barr.
„Ég vissi ekki hvað ég var að gera. Eins og margir strákar þegar þeir gera það í fyrsta sinn. En síðan þá hef ég lagt hart að mér að læra hvernig ég get gert þetta öruggara og þægilegra fyrir báða aðila,“ sagði Barr.
Hann hefur upplifað mörg pínleg augnablik í kynlífinu og eitt sinn endaði það illa.
„Ég tók hann út og í hugsunarleysi, sveiflaði ég honum. Hún stóð nærri mér og fékk heilahristing. Við hlæjum að þessu í dag en á þessum tímapunkti var þetta algjör klikkun,“ sagði hann.