fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Pressan

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir

Pressan
Fimmtudaginn 12. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forstjóri bandaríska sjúkratryggingafélagsins UnitedHealthCare var skotinn til bana á Manhattan í desember. Í kjölfarið var hinn 27 ára hugbúnaðarverkfræðingur, Luigi Mangione, ákærður fyrir morð og hryðjuverk. Þrátt fyrir að flestir séu sammála um það að morð sé almennt myrkraverk sem beri að refsa fyrir þá hafa margir hyllt Mangione sem hetju, en morðið vakti mikla reiði í garð einkarekna sjúkratryggingakerfis Bandaríkjanna.

Fjöldi fólks hefur fagnað ódæðinu og líta á Mangione sem byltingarhetju. Fljótlega eftir að Mangione sögðust 60 prósent aðspurðra að þeir myndu sýkna Mangione ef þeir fengju sæti í kviðdómi málsins, en könnunin fór fram meðal íbúa New York.

Mangione er nokkuð hrærður yfir þeim mikla stuðningi sem hann hefur fengið. Bréfum rignir til hans í fangelsinu frá aðdáendum og hann hefur tekið sig til og svarað sumum, sem hafa svo birt samskiptin á samfélagsmiðlum.

Meinti morðinginn fagnaði 27 ára afmæli sínu í gæsluvarðhaldi í maí og af því tilefni sendi hann aðdáendum lista um 27 hluti sem hann er þakklátur fyrir. Seinasta atriðið á listanum var sérsniðið að hverjum viðtakanda fyrir sig.

Þakklátur fyrir bækurnar

Þarna þakkar Mangione fyrir fjölskyldu sína og vini. Hann þakkar fyrir þær þúsundir bréfa sem hann hefur fengið send, sérstaklega fyrir þau bréf þar sem fólk er að deila með honum sorgum og sigrum. Þetta brjóti upp einsleita daga hans í haldi. Eins hefur hann fengið gífurlegt magn af bókum að gjöf frá aðdáendum. Hann segist aldrei komast í að lesa þær allar en kann að meta að hafa þær á svæðinu, vitandi að hann getur gripið í þær ef hann vill. Hann hefur komið upp eins konar bókasafni í fangelsinu, deilir bókum með öðrum föngum og þá einkum með klefafélaga sínum sem er að afplána 10 ára dóm. Hann er eins þakklátur fyrir deildir fangelsisins sem þurfa að fara yfir öll bréfin sem hann fær, ljósrita þau og skrá í gagnasöfn.

Hann er meira að segja þakklátur fyrir fangaverðina. Það hafi komið honum á óvart að fangaverðirnir séu ekki sömu óþokkarnir og birtast gjarnan í kvikmyndum, þvert á móti sé þetta gott fólk sem vill öðrum vel.

Þakklátur fyrir peninginn

Eins hafi hann fengið fjárstuðning sem hann er þakklátur fyrir.

„Um það bil 30 þúsund einstaklingar víðs vegar að úr heiminum hafa tekið höndum saman og gefið rúmlega 130 milljónir í málsvarnarsjóð minn sem hefur gert mér kleift að fá heimsklassa verjendateymi í þeim þremur sakamálum sem hafa verið höfðuð gegn mér.“

Eins hafi styrkir frá aðdáendum gert honum kleift að kaupa spjaldtölvu, tónlist, frímerki, hreinlætisvörur, bbq-sósu, hnetusmjör og annað í fangelsinu. Hann segist svo bæði vera þakklátur fyrir íhaldsmenn og frjálslynda.

„Íhaldsmenn, sem verja af ástríðu þá hluta samfélags okkar sem gera okkur frábær.“

„Frjálslyndir, sem frelsa okkur frá úreltum öngum samfélagsins sem hindra okkur frá því að verða betri.“

Mangione segist einnig þakklátur fyrir að vera Bandaríkjamaður.

„Fyrir að vera fæddur í Bandaríkjunum. Þau eru ásótt af fortíð sinni, þau eru veik og glíma við innri togstreitu – en það er náttúra þeirra sem þjóð einstaklinga. Þau eru ung í miðri táningakrísu. Þrátt fyrir gallana eru stoðirnar sterkar og möguleikarnir óviðjafnanlegir.“

Mangione segist svo þakklátur fyrir samtök sem kalla sig „latneskar konur fyrir Mangine“, fyrir lukku-síðaermabolinn sinn, fyrir hjörtu og tjáningarfrelsi.

„Grundvöllur lífs okkar: „Þegar þú rífur tunguna úr manni ertu ekki að sanna að hann sé lygari, þú ert aðeins að segja heiminum að þú óttast það sem hann gæti haft að segja.“ – George.“

Tilvitnunin kemur frá rithöfundinum George R.R. Martin sem skrifaði bækurnar Krúnuleikana.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tekinn af lífi fyrir hryllilegan glæp árið 1994

Tekinn af lífi fyrir hryllilegan glæp árið 1994
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk þurfti að leiðrétta gervigreindina sína – „„Nei, þetta er falsað, andskotinn hafi það“

Elon Musk þurfti að leiðrétta gervigreindina sína – „„Nei, þetta er falsað, andskotinn hafi það“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sá hluta af heila sonar síns á jörðinni eftir hræðilegt slys – Læknar sögðu fjölskyldunni að kveðja

Sá hluta af heila sonar síns á jörðinni eftir hræðilegt slys – Læknar sögðu fjölskyldunni að kveðja
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blandaðu þessu kryddi í kaffið – Getur komið í veg fyrir minnistap og bætt einbeitinguna

Blandaðu þessu kryddi í kaffið – Getur komið í veg fyrir minnistap og bætt einbeitinguna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hætti að láta heyra frá sér í ágúst 2010 – Nú telur lögregla sig vita hvað gerðist

Hætti að láta heyra frá sér í ágúst 2010 – Nú telur lögregla sig vita hvað gerðist