fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Pressan

Listgjörningurinn sem fór algjörlega úr böndunum

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. júní 2025 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Því er stundum haldið fram að listin sé spegill á samfélagið og hjálpi okkur við að skilja betur hið mannlega eðli. Árið 1974 framkvæmdi serbneska gjörningalistakonan Marina Abramovic afar áhugaverðan gjörning sem hefði getað kostað hana lífið.

Marina er fædd árið 1946 og hefur hún komið víða við á ferli sínum í listum. Auk þess að vera gjörningalistakona hefur hún fengist við skrif og kvikmyndagerð og hafa verk hennar oftar en ekki vakið athygli – en sennilega ekkert þó meira en Rhythm 0 í Napoli árið 1974.

Áður en gjörningurinn hófst hafði Marina komið 72 hlutum fyrir á borði inni í sýningarsalnum. Hún gaf sig algjörlega á vald áhorfenda og sagði þeim að þeir mættu nota þessa hluti á hana eins og þeim sýndist í sex klukkustundir, frá klukkan átta að kvöldi til klukkan tvö um nótt.

Allt fór vel af stað

Marina sýndi engin svipbrigði þegar áhorfendur komu upp að henni og gerðu það sem þeim sýndist. Á skilti fyrir framan hana stóð að ábyrgðin yrði alltaf hennar, hvað sem áhorfendum dytti í hug að gera.

Á borðinu voru allskonar hlutir; blóm, súkkulaði, hnífur, dagblað, nál, fjöður, kerti, eldspítur, byssa, varalitur, naglar og skæri svo eitthvað sé nefnt.

Í upprifjun vefjarins History Defined á gjörningnum kemur fram að í fyrstu hafi gjörningurinn farið vel fram og áhorfendur sýnt listamanninum virðingu og tillitsemi. Einhverjir gengu upp að Marinu og kysstu hana á meðan aðrir gáfu henni súkkulaðiköku eða jafnvel blóm.

Drakk úr henni blóðið

Ekki leið á löngu þar til andrúmsloftið í sýningarsalnum byrjaði að breytast og áhorfendur byrjuðu að ganga sífellt lengra. Einn tók til dæmis upp hníf og skar af henni fötin á meðan annar blóðgaði hana á hálsinum og drakk úr henni blóðið. Meðan á þessu stóð sýndi Marina engin svipbrigði og jafnvel þegar sársauki og hræðsla gerðu það að verkum að tár fóru að renna niður kinnarnar stóð hún keik.

Kvöldið var þó langt því frá búið. Á einum tímapunkti lyfti áhorfandi henni upp, skellti henni yfir axlirnar og gekk með hana hálfnakta um sýningarsalinn. Henni var svo skellt niður á borð og hníf komið fyrir á milli fótleggja hennar. Áhorfendur héldu svo áfram.

Manaði hana til að taka í gikkinn

Kona ein tók upp byssuna sem var á borðinu og setti byssukúlu í hana. Hún setti byssuhlaupið svo upp að gagnauganu á Marinu og setti fingurinn á henni á gikkinn – að því er virðist til að mana hana að taka í gikkinn. Þegar starfsfólki sýningarinnar var hætt að standa á sama gerðu þeir byssuna upptæka en Marina skipti sér ekki af.

Maður sem kom á sýninguna sem gagnrýnandi hafði á orði eftir sýninguna að hún hefði ekki kippt sér upp við það ef einhver hefði nauðgað henni eða hreinlega drepið.

Áhugaverð tilraun

Sýningin vakti mikla athygli og eins og segir í umfjöllun History Defined var markmið Marinu göfugra en svo að hún vildi bara daðra við dauðann. Hún vildi kanna hvað myndi gerast ef við gæfum okkur á vald ókunnugra og það sem meira er, hvað fólk gerir í aðstæðum þar sem það má gera hvað sem er án þess að þurfa að fylgja einhverju siðferði.

Segja má að áhorfendur hafi skipst í tvær fylkingar; þeir sem vildu beita hana harðræði og jafnvel ofbeldi og svo þeir sem vildu reyna að verja hana og sýna henni gæsku.

Marina er vel þekkt nafn í listaheiminum og kom hún meðal annars á Tilraunamaraþon Listahátíðar árið 2008 þar sem hún hélt gjörning í Hafnarhúsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segir börn sín ekki þekkja heimsþekktan heimilisvin

Segir börn sín ekki þekkja heimsþekktan heimilisvin
Pressan
Í gær

Neituðu að horfa á upptökur af voðaverkum Hamas – Greta Thunberg í flugvél á leið frá Ísrael

Neituðu að horfa á upptökur af voðaverkum Hamas – Greta Thunberg í flugvél á leið frá Ísrael
Pressan
Fyrir 3 dögum

Einbúinn lét bílskúr eftir sig þegar hann lést – Fjölskyldan fékk áfall þegar hún opnaði skúrinn

Einbúinn lét bílskúr eftir sig þegar hann lést – Fjölskyldan fékk áfall þegar hún opnaði skúrinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullt hljóð truflaði kennarana dag og nótt – Áttu ekki orð þegar þeir fundu upptök þess

Dularfullt hljóð truflaði kennarana dag og nótt – Áttu ekki orð þegar þeir fundu upptök þess