Þetta er lítið dýr með átta fætur og andlit sem líkist einna helst einhverju úr Rick & Morty. Þetta er vatnsbjörn. Vísindamenn við Oxfordháskóla og Harvard segja að þetta sé eina dýrið hér á jörðinni sem gæti lifað ekta dómsdag af.
Í rannsókn sinni skoðuðu vísindamennirnir hvað myndi gerast ef svakalegir atburðir myndu eiga sér stað og eyða öllu lífi á plánetu sem líkist jörðinni. Hér er ekki átt við atburði á borð við loftslagsbreytingar, kjarnorkustríð eða gervigreind.
Það sem um ræðir er:
Sprengistjörnur
Gammageislar
Árekstur við risastóran loftstein
Stjörnur sem koma of nærri plánetunni
Fræðilega séð geta atburðir af þessu tagi soðið heimshöfin og gert jörðina að steikarpönnu og þar með gert út af við allt líf. Nema hvað vatnsbjörninn gæti lifað þetta af.
Vatnsbirnir eru örsmá dýr sem elska vatn. Þeir líta eiginlega út eins og krúttlegir rykmaurar í geimbúningi.
En þeir eru ótrúlega harðgerir. Þeir geta lifað af allt niður í 272 gráðu frost og upp í 150 gráðu hita. Þeir geta lifað af í lofttæminu í geimnum. Geislun, þrýstingur og algjör vökvaskortur hefur lítil sem engin áhrif á þá. Þeir geta lagst í dvala þar sem þeir slökkva alveg á sér og bíða eftir betri tíma.