fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Pressan

Viltu léttast? – Þá máttu alls ekki sleppa morgunmatnum

Pressan
Sunnudaginn 8. júní 2025 09:00

Hafragrautur er vinsæll morgunmatur. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins. Þetta höfum við örugglega öll heyrt en á tímum þar sem margir gera tilraunir með að fasta, fylgja ketómataræðinu, drekka bara safa eða bara kaffi fram að hádegi, þá er morgunmatnum oft sleppt. Sérstaklega af þeim sem vilja léttast. En málið er að ef þú sleppir því að borða morgunmat, þá eykur þú líkurnar á að þyngdartapið verði erfiðara, ekki auðveldara.

Þegar þú borðar morgunmat, sendir þú líkamanum skilaboð um að byrja orkunotkun dagsins. Ef þú borðar ekki morgunmat, þá heldur líkaminn áfram að vera í einhverskonar „næturástandi“ og efnaskiptin keyra í lágum gír. Þetta þýðir ekki að þú þurfir að setjast við hlaðborð á morgnana og úða í þig en smávegis prótín, trefjar og holl fita geta komið brennslunni í gang.

Þegar þú sveltir líkamann klukkustundum saman, þá bregst hann við með meiri hungurtilfinningu, löngun í mat og lélegri ákvarðanatöku. Þetta endar bara með að þú borðar of mikið í hádegismat, færð þér snarl seinnipartinn eða missir stjórn á þér í eldhúsinu klukkan 21. Stabíll morgunmatur heldur blóðsykrinum í jafnvægi og gerir þér auðveldara fyrir við að segja nei við óhollum freistingum.

Ef þig skortir orku frá upphafi, þá gætir þú fundið fyrir þreytu, lítilli einbeitingu, höfuðverk og skapsveiflum. Þetta hefur ekki bara áhrif á líkamann heldur einnig hvað þú velur, hvatninguna til að hreyfa þig og orkuna.

Þyngdartap snýst ekki bara um hitaeiningar, heldur hvernig þú borðar þær. Þrátt fyrir að þú „sparir“ kannski 300 hitaeiningar  með því að sleppa morgunmatnum, þá getur það kostað þig andlega orku, brennslu og sjálfsstjórn. Það er einmitt þetta sem verður mörgum að falli.

En hvað á að borða til að auka líkurnar á þyngdartapi? Það getur til dæmis verið prótínríkur matur, egg, skyr, grísk jógúrt og kotasæla. Eitthvað með trefjum, það gæti verið hafrar, heilhveiti, ávextir og chíafræ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rogers á óskalistanum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þessum líkamshluta þarftu að halda heitum til að forðast veikindi

Þessum líkamshluta þarftu að halda heitum til að forðast veikindi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Meinti morðingi Madeleine McCann hæðist að lögreglu í hrollvekjandi bréfi – „Er búið að finna líkið?“ 

Meinti morðingi Madeleine McCann hæðist að lögreglu í hrollvekjandi bréfi – „Er búið að finna líkið?“ 
Pressan
Í gær

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum
Pressan
Í gær

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hlið helvítis er að deyja út

Hlið helvítis er að deyja út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop