fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google

Pressan
Fimmtudaginn 5. júní 2025 18:30

Svona leit kortið út um tíma. Skjáskot/Google Maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lokað – Lokað – Lokað – Lokað – Lokað – Lokað – Lokað – Lokað. Þetta voru skilaboðin sem þýskir ökumenn fengu á Google Maps á uppstigningardag sem er einn annasamasti dagurinn á þýskum vegum.

Úr urðu langar bílalestir og algjört öngþveiti sums staðar þegar fjöldi mikilvægra og fjölfarinnar vega virtust skyndilega vera lokaðir.

En svo var ekki að sögn The Guardian sem segir að um risastór og dularfull mistök hafi verið að ræða hjá Google Maps.

Kortið var þakið litlum rauðum stöðvunarmerkjum sem gefa til kynna að vegur sé lokaður af einhverjum orsökum. Þetta átti við um vegi nærri borgum á borð við Berlín, Frankfurt og Hamborg. Þetta náði einnig til hraðbrauta um allt land og vandinn teygði sig meira að segja til nágrannaríkjanna Belgíu og Hollands.

Þetta hafði þau áhrif að margir, ringlaðir ökumenn, leituðu út á fáfarna vegi þar sem raðir mynduðust fljótlega.

Aðrar leiðarþjónustur virkuðu eðlilega en það skapaði einnig ákveðinn rugling því fólk vissi bara ekki hverju það átti að trúa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana