BBC skýrir frá þessu og segir að gögn sýni að ef fólk drekkur 35 skammta af áfengi á viku í fimm ár eða lengur, þá geti það orðið fyrir áfengistengdum heilaskaða, ARBD. Þessi heilaskaði getur haft í för með sér að fólk á erfitt með að sinna einföldum hverdagsathöfnum og þetta getur skaðað minnið.
Gareth Roderique-Davies, sálfræðiprófessor við University of South Wales, sagði í samtali við BBC að ARBD sé oft vanmetinn eða ranglega greindur vegna skorts á upplýsingum og þekkingu á vandanum.