fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Pressan

Hafa verkjalyf minni áhrif á konur?

Pressan
Sunnudaginn 8. júní 2025 09:00

Tylenol verkjalyf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Af hverju finnst sumum konum að verkjastillandi lyf virki ekki á þær eins og þau eiga að gera? Þetta er eitthvað sem endurspeglar töluvert áhyggjuefni innan læknisfræðinnar.

Áratugum saman hafa rannsóknir horft fram hjá þessum líffræðilegu viðbrögðum kvenna í rannsóknum varðandi verki. Þessi skekkja hefur valdið síður áhrifaríkum meðferðum fyrir konur og meðferðum sem eru oft ekki nægilega góðar.

Þar til fyrir ekki svo löngu voru flestar rannsóknir tengdar verkjum, gerðar af körlum og með karlkyns þátttakendum, óháð því hvort það var fólk eða dýr.

Í greiningu, sem Medical News Today fjallaði um, kemur fram að í rúmlega 80% rannsókna, á verkjum, sem voru gerðar fyrir 2016 hafi sjónunum verið beint að körlum.

Þessi fjarvera kvenna var oft skýrð með að hún væri vegna hormóna sem gætu verið truflandi þættir varðandi rannsóknirnar. Þess í stað hefði átt að líta á þetta sem mikilvæga þætti sem þyrfti að rannsaka.

Þetta val  hefur haft viðvarandi neikvæð áhrif því núverandi þekking okkar á verkjum og verkjalyfjum byggist enn í dag aðallega á gögnum frá karlmönnum.

Í rannsókn frá 2021, sem var birt í vísindaritinu Brain, Behavior & Immunity ‚ Health, kom í ljós að íbúprófen, svo dæmi sé tekið, virðist hafa betri áhrif á karla en konur þegar kemur að því að draga úr verkjum.

Í rannsókninni kom einnig fram það mat vísindamanna að munurinn á hormónastarfsemi kynjanna sé lykilþáttur. Til dæmis geti östrógen haft áhrif á verki á mismunandi hátt, stundum aukast verkirnir, stundum minnka þeir, allt háð því hvar þeir eru í líkamanum. Testósterón, sem er frekar til staðar hjá körlum, virkar öfugt við östrógen og hjálpar til við að draga úr sársaukatilfinningunni. Í sumum tilfellum krónískra verkja, eru testósterón-meðferðir taldar gefa betri árangur við að draga úr verkjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rogers á óskalistanum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þessum líkamshluta þarftu að halda heitum til að forðast veikindi

Þessum líkamshluta þarftu að halda heitum til að forðast veikindi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Meinti morðingi Madeleine McCann hæðist að lögreglu í hrollvekjandi bréfi – „Er búið að finna líkið?“ 

Meinti morðingi Madeleine McCann hæðist að lögreglu í hrollvekjandi bréfi – „Er búið að finna líkið?“ 
Pressan
Í gær

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum
Pressan
Í gær

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hlið helvítis er að deyja út

Hlið helvítis er að deyja út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop