fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Ertu í vandræðum með silfurskottur? Svona er hægt að losna við þær

Pressan
Sunnudaginn 8. desember 2024 13:30

Silfurskottur eru hvimleiðar en meinlausar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Silfurskottur eru meinlaus skordýr en hvimleið. Þær elska rakt og heitt umhverfi, til dæmis baðherbergi og eldhús. Þær eru hættulausar en eru pirrandi og geta eyðilagt hluti á borð við bækur, efni og ljósmyndir.

Það er hægt að takast á við þær með ýmsum aðferðum.

Silfurskottur þrífast í miklum raka og því getur tilvist þeirra verið merki um rakavandamál. Það er mikilvægt að finna uppsprettu rakans og loka fyrir hana.

Lykillinn að því að halda þeim fjarri er að lofta vel út. Best er að lofta vel út 2 til 3 á dag og láta trekkja vel í gegnum húsið í 5-10 mínútur, sérstaklega í rökum rýmum á borð við baðherbergi.

Það er líka mikilvægt að ryksuga reglulega og þurrka raka fleti. Ryksugaðu vel með fram listum og í rifum en þar fela silfurskottur sig oft.

Silfurskottur lifa meðal annars af sápuleifum, hveiti og sykri. Haltu sturtuklefanum, vaskinum og eldhúsinu þurru og hreinu.

Það getur líka verið gott að hreinsa niðurföll með blöndu af ediki og natróni því það eyðir lykt og ýmsum leifum.

Ef fyrrgreint dugir ekki til að losna við silfurskotturnar, þá er hægt að nota skordýraeitur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar

Höfuð fjölskyldunnar átti sér dökka hlið – Dökkir skuggar fortíðarinnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur