fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Pressan

Grunaður um morð – Sagði að „Lúsifer“ hefði myrt 81 árs nágranna hans

Pressan
Fimmtudaginn 2. mars 2023 22:00

Tamorian Moore. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tamorian Moore, 23 ára, er í haldi lögreglunnar í Austin í Texas. Hann er grunaður um að hafa myrt 81 árs nágranna sinn, Leonard Foster.

Fjölskylda Foster telur að hann hafi verið fórnarlamb hatursglæps því hann var samkynhneigður.

Fox 7 Austin segir að lögreglan hafi verið kölluð að heimili Foster þann 18. febrúar til að kanna með ástand hans. Tilkynnandinn sagðist hafa reynt að ná sambandi við Foster í nokkra daga.

Hann fór síðan heim til hans og sá þá að útidyrnar voru opnar og bíllinn hans var horfinn. Einnig sagðist hann hafa séð Moore aka bifreið Fosters og fara með ruslapoka úr íbúð hans.

Foster var ekki í íbúð sinni en lögreglan fann hins vegar lík hans í íbúð Moore.

Þegar lögreglan spurði Moore út í málið sagði hann að „Lúsifer“ hefði drepið Foster. Hann sagðist hafa „misst minnið“ og gæti ekki sagt nákvæmlega til um hvernig „Lúsifer“ myrti Foster.

Krufning leiddi í ljós að Foster lést af völdum höfuðáverka og hann var einnig með skurði víða á líkamanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þess vegna vill hundurinn fylgja þér á klósettið

Þess vegna vill hundurinn fylgja þér á klósettið
Pressan
Í gær

Þetta nota píparar til að hreinsa niðurfallið á 30 sekúndum – Þú átt þetta efni í eldhúsinu

Þetta nota píparar til að hreinsa niðurfallið á 30 sekúndum – Þú átt þetta efni í eldhúsinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hversu hollt er að drekka vín daglega? – Sérfræðingar svara því

Hversu hollt er að drekka vín daglega? – Sérfræðingar svara því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað? Eða eru Rússar komnir með yfirráð yfir Bandaríkjunum?

Var bandaríska varnarmálaráðuneytið hakkað? Eða eru Rússar komnir með yfirráð yfir Bandaríkjunum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjarlægja 1.700 sólarbekki af ströndunum Mallorca

Fjarlægja 1.700 sólarbekki af ströndunum Mallorca