Fellibylurinn Ian hrellir nú íbúa á Kúbu og í gærkvöldi fór rafmagn af öllu landinu skömmu eftir að fellibylurinn gekk yfir allt landið. Áður hafði hann herjað á vesturhluta þess með öflugum vindhviðum og flóðum.
Ian stefnir nú á Flórída og hafa 2,5 milljónir íbúa þar verið beðnir um að flýja áður en fellibylurinn nær landi en það gerist í kvöld. Reiknað er með að hann verði þá þriðja eða fjórða stigs fellibylur.
Allir fellibyljir á þriðja stigi og þar fyrir ofan eru svo öflugir að vindhraði þeirra er talinn gríðarlega hættulegur fyrir þau svæði sem þeir fara yfir.