fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Danmörk – Feðgar myrtu móðurina því hún var ekki sanntrúaður múslimi

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 10. september 2021 06:05

Mynd úr safni. Mynd: EPA-EFE/Henning Bagger DENMARK OUT

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtudagsmorgun einn í september á síðasta ári var 44 ára kona myrt í Randers á Jótlandi í Danmörku. Hún var stungin margoft í höfuð, háls og víða í líkamann og var sonur hennar að verki.

Sonurinn sem var 17 ára þegar þetta gerðist var ekki einn að verki samkvæmt því sem kemur fram í ákæru vegna málsins. Hann og faðir hans, sextugur eiginmaður konunnar, eru báðir ákærðir. Í ákærunni kemur fram að þeir hafi lagt á ráðin um að myrða konuna vegna þess að hún var ekki sanntrúaður múslimi.

BT segir að í ákærunni komi fram að feðgarnir hafi undirbúið morðið í langan tíma og að í undirbúningi sínum hafi þeir einnig gert ráð fyrir að sonurinn myndi einn taka á sig sök fyrir morðið.

Ástæðan fyrir morðinu var meðal annars að konan var ekki sanntrúaður múslimi og neitaði að afsala sér sinn hlut í fasteign til eiginmanns síns.

Philip Møller, saksóknari, sagði að málið væri umfangsmikið og margt í því sem geri að verkum að hann krefjist þyngri refsingar en ella. Málsskjölin eru um 3.000 blaðsíður. Hann sagði að auk refsingar fyrir morðið sjálft eigi feðgarnir refsingu yfir höfði sér fyrir að hafa myrt konuna vegna trúar hennar en sérstakt ákvæði gildir um slík brot.

Feðgarnir eru frá Afganistan. Pilturinn kom til Danmerkur með foreldrum sínum. Þeir eiga báðir á hættu að verða vísað úr landi þegar þeir hafa lokið afplánun hugsanlegs dóms.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?