Streymisveitan Netflix birti í gær uppgjör fyrir annan ársfjórðung. Þar kemur fram að áskrifendum hafi fjölgað um tæplega eina milljón á heimsvísu og eru þeir nú orðnir 209 milljónir. Áskrifendum fjölgaði meira en fyrirtækið átti von á en sérfræðingar á markaði höfðu spáð því að þeim myndi fjölga um 5,5 milljónir. Nú hyggst fyrirtækið breyta um stefnu í efnisvali og beina sjónum sínum í auknum mæli að eldri kynslóðum og einnig hefur það í hyggju að bjóða áskrifendum upp á tölvuleiki.
Samkeppnin á markaðnum hefur harðnað og streymisveitur á borð við Disney+ og HBO veita Netflix harða samkeppni.
Netflix segir að nú sé verið að undirbúa að bjóða upp á tölvuleiki sem verði hluti af áskriftinni án þess að verðið hækki. Sérstök áhersla verður lögð á tölvuleiki fyrir farsíma. Þetta gæti laðað nýja áskrifendur að, væntanlega yngri kynslóðirnar, en fyrirtækið ætlar einnig að beina sjónum sínum að eldri kynslóðunum með því að leggja meiri áherslu á efni sem höfðar til þeirra, til dæmis glæpamyndir og heimildarmyndir auk dramaþátta og mynda sem byggjast á sögulegum atburðum.