Eflaust muna flestir eftir árás stuðningsmanna Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, á þinghúsið í Washington D.C. þann 6. janúar. Í kjölfarið hóf alríkislögreglan FBI rannsókn á málinu og hefur fjöldi manna verið handtekinn síðan. Síðasta fimmtudag var einn til viðbótar handtekinn en það var stefnumótaapp sem varð honum að falli.
Hann heitir Robert Chapman. Það var stefnumóttappið Bumble sem varð honum að falli en þar skrifaði hann: „Ég tók þátt í árásinni á þinghúsið.“ CNN skýrir frá þessu.
Væntanlega hefur hann skrifað þetta til að ganga í augun á þeim sem hann var að skrifast á við en óhætt er að segja að það hafi ekki borið árangur. Sá sem hann var að skrifast á við svaraði honum að honum/henni fyndist ekki vera neitt sem tengdi þau/þá saman.
Samkvæmt dómsskjölum sendi Chapman skilaboð til viðkomandi viku eftir árásina á þinghúsið. Móttakandi skilaboðanna setti sig fljótlega í samband við FBI eftir að Chapman skýrði frá þátttöku sinni í árásinni á þinghúsið en fimm manns létust í henni.
Chapman var einnig mjög virkur á Facebook en þar notaði hann nafnið Erick. Þar skrifaði hann meðal annars: „Ég er inni í þinghúsinu.“
Hann hefur verið kærður fyrir þátttöku í árásinni en auk hans hafa tæplega 400 til viðbótar verið kærðir.