fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Morð, íkveikja og eins saknað

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. apríl 2021 05:14

Frá vettvangi í nótt. Skjáskot/Sænska ríkisútvarpið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikill eldur braust út á stúdentagörðum í Halmstad í Svíþjóð á tíunda tímanum í gærkvöldi og logar enn. Lögreglunni barst tilkynning um átök á vettvangi klukkan 21.19. Þegar hún kom á vettvang fundu lögreglumenn alvarlega slasaðan mann utanhúss. Talið er að hann hafi verið stunginn með hníf eða álíka verkfæri. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést síðar.

Sænska ríkisútvarpið skýrir frá þessu auk annarra sænskra fjölmiðla. Fram kemur að karlmaður á fertugsaldri hafi verið handtekinn vegna málsins. Hann er grunaður um að hafa orðið manninum að bana og að hafa kastað einhverju inn á stúdentagarðana sem varð til þess að eldur kviknaði. Eins er saknað í brennandi húsinu.

Talsmaður lögreglunnar sagði í nótt að enn væri ekki búið að bera kennsl á hinn látna.

Íbúar á svæðinu segja að öflug sprenging hafi orðið áður en eldurinn kviknaði.

Vitni segja að hinn handtekni hafi komið akandi á vettvang og hafi kastað einhverju í húsið og síðan staðið öskrandi fyrir utan. Nokkrum sekúndum síðar varð sprenging.

30 íbúðir eru í húsinu en að minnsta kosti helmingur þess er brunninn. Slökkviliðið hefur verið með 10 bíla á vettvangi í nótt. Það náði tökum á eldinum um klukkan þrjú og er nú að ráða niðurlögum hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sex ungar stúlkur voru myrtar – Lögreglan taldi raðmorðingja vera að verki

Sex ungar stúlkur voru myrtar – Lögreglan taldi raðmorðingja vera að verki
Pressan
Í gær

Nýtt vopn skelfir Rússa – Beinir flugskeytum Pútíns af leið

Nýtt vopn skelfir Rússa – Beinir flugskeytum Pútíns af leið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar