fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Setti á svið ótrúlega atburðarás til að losna við eiginkonuna – saklaus maður lokkaður í dauðagildru

Pressan
Mánudaginn 8. júní 2026 18:00

Brendan með eiginkonu sinni og dóttur. Hún situr eftir móðurlaus og með föður sem verður í fangelsi það sem eftir er.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríkjamaðurinn Brendan Banfield hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn fyrir morð á eiginkonu sinni og saklausum manni sem hann lokkaði að heimili fjölskyldunnar. Um var að ræða flókið samsæri sem Brendan skipulagði með au pair-stúlku sem hann átti í ástarsambandi við.

Brendan var í febrúar síðastliðnum fundinn sekur um morð á eiginkonu sinni, Christine Banfield, 37 ára hjúkrunarfræðingi á gjörgæslu barna, og Joseph Ryan, 39 ára manni sem var lokkaður að heimili fjölskyldunnar í Virginíuríki í febrúar árið 2023.

Málið vakti mikla athygli þegar réttarhöld hófust fyrr á árinu. Þá kom fram að Banfield hefði átt í ástarsambandi við Juliana Peres Magalhaes, 25 ára konu frá Brasilíu sem starfaði sem au pair á heimili fjölskyldunnar.

Vildi ekki skilja við eiginkonuna

Samkvæmt vitnisburði Magalhaes hafði Brendan sagt henni haustið 2022 að hann vildi „losna við“ eiginkonu sína. Skilnaður væri ekki raunhæfur kostur þar sem fjárhagslegir hagsmunir væru í húfi og hann vildi ekki hætta á að missa forræði yfir dóttur þeirra.

Saksóknarar sögðu að Brendan og Magalhaes hefðu búið til notandaaðgang á vefsíðu sem þjónar fólki sem stundar BDSM. Þar hafi þau gefið sig út fyrir að vera Christine Banfield og komið sér í samband við Ryan.

Í samskiptunum var Ryan látinn trúa því að hann væri að taka þátt í kynferðislegum hlutverkaleik með samþykki allra aðila, þar sem meðal annars átti að nota fjötra og hníf.

Lokkaður í dauðagildru

Saksóknarar sögðu að markmið Brendan hefði verið að nota Ryan sem peð í morðáætluninni.

Þann 23. febrúar 2023 mætti Ryan á heimili fjölskyldunnar samkvæmt fyrirfram ákveðnu plani. Þar er Brendan sagður hafa skotið hann í höfuðið. Að því loknu hafi hann ráðist á eiginkonu sína með hnífi og stungið hana til bana.

Að sögn saksóknara var ætlunin að láta líta út fyrir að Ryan hefði ráðist á Christinu með hnífi og veitt henni lífshættulega áverka. Hún hefði síðan skotið hann til bana í sjálfsvörn áður en henni blæddi út.

Magalhaes játaði á síðasta ári sök í manndrápi vegna dauða Ryans eftir samkomulag við saksóknara. Hún samþykkti jafnframt að bera vitni gegn Brendan gegn því að fá vægari dóm.

Dómarinn Penney Azcarate fór hörðum orðum um Brendan við dómsuppkvaðninguna.

„Virðingarleysið gagnvart lífi eiginkonu þinnar, manneskju sem þú sagðist elska, er nánast óskiljanlegt,“ sagði hún áður en hún dæmdi hann til lífstíðarfangelsis án möguleika á reynslulausn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Spillingarherferð Xi Jinping stendur sem hæst – Fyrrum ráðherrar dæmdir til dauða

Spillingarherferð Xi Jinping stendur sem hæst – Fyrrum ráðherrar dæmdir til dauða
Pressan
Í gær

Reiður Trump rauk út úr viðtali – „Thank you darling, have a good time“

Reiður Trump rauk út úr viðtali – „Thank you darling, have a good time“
Pressan
Í gær

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Í gær

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig