fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Tilraunir með bóluefni gegn kórónuveirunni eru komnar á lokastig

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 16. júlí 2020 07:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna er komið langt áleiðis við þróun bóluefnis gegn kórónuveirunni. Þann 27. júlí hefst þriðja stig tilrauna með bóluefnið en þá verður byrjað að fá 30.000 sjálfboðaliða til að taka þátt í tilrauninni. Helmingur þeirra verður sprautaður með bóluefninu en hinn með lyfleysu.

Fyrri stig þróunar bóluefnisins hafa lofað góðu og því er komið að þessu stóra skrefi. Tilraunin á að leiða í ljós hvort bóluefnið geti komið í veg fyrir að fólk smitist af kórónuveirunni. Bóluefnið gæti einnig orðið velheppnað, þótt það komi ekki í veg fyrir smit, ef það kemur í veg fyrir verstu einkenni COVID-19.

Þriðja stig tilraunarinnar stendur yfir til 27. október að því er segir á heimasíðunni clinicaltrials.gov.

Tilkynnt var um þetta eftir að vísindaritið New England Journal of Medicine skýrði frá niðurstöðum tilrauna Moderna á þriðjudaginn. Í þeim tóku 45 sjálfboðaliðar þátt og mynduðu þeir allir mótefni gegn veirunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó

Mörg þúsund Norðmenn fengu skilaboð fyrir mistök um milljónavinning í Lottó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli

Þóttist vera sádiarabískur prins í 30 ár – Beikon varð honum að falli