fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Pressan

Fyrsta staðfesta tilfelli COVID-19 í ófæddu barni

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 15. júlí 2020 07:02

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franskir læknar staðfestu í gær að drengur, sem fæddist í mars, hafi verið með COVID-19 þegar hann fæddist. Hann var með bólgur í heila og nokkur önnur einkenni smits sem sjást yfirleitt aðeins hjá fullorðnum. Hann hefur náð sér. Þetta er fyrsta staðfesta tilfelli þess að móðir hafi smitað ófætt barn sitt af COVID-19.

Þetta kemur fram í vísindaritinu Nature Communications.

Fyrri rannsóknir bentu til að móðir gæti smitað ófætt barn sitt og nú hefur það verið staðfest að sögn Daniele De Luca læknis sem vann að rannsókninni. Hún segir að nú hafi verið sýnt fram á að smit geti borist frá móður til fósturs um fylgjuna á síðustu vikum meðgöngunnar.

Í síðustu viku sögðu ítalskir vísindamenn að rannsókn á 31 barnshafandi konu, sem voru innlagðar með COVID-19, bentu sterklega til að veiran gæti borist frá móður til ófædds barns.

Fyrrnefndur drengur byrjaði að sýna einkenni COVID-19 um sólarhring eftir að hann kom í heiminn. Líkami hans varð stífur, heili hans varð fyrir áhrifum og hann var mjög pirraður. Hann komst á bataveg áður en læknar gátu tekið ákvörðun um hvaða meðferð væri best fyrir hann. Hann náði næstum fullri heilsu á þremur vikum. Þremur mánuðum síðar var móðir hans orðin einkennalaus.

Frönsku læknarnir leggja áherslu á að á meðal þeirra mörg þúsund barna, sem COVID-19 smitaðar mæður, hafa alið séu það aðeins eitt til tvö prósent sem hafa greinst með smit.

„Slæmu fréttirnar eru að þetta gerðist og getur gerst. Góðu fréttirnar eru að þetta er mjög sjaldgæft.“

Sagði Daniele De Luca.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 3 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu