Fyrirtækið tekur þessa ákvörðun á sama tíma og stjórnendur samfélagsmiðla reyna að átta sig á hvernig á að bregðast við kynþáttaníði og hatri á miðlum þeirra.
„Kynþáttahatur á hvergi við og það á ekki við á samfélagsmiðlum.“
Er haft eftir James Quincey, forstjóra The Coca-Cola Company, í fréttatilkynningu. Hann segir að eigendur samfélagsmiðla verði að leggja sitt af mörkum með „meiri ábyrgð og gegnsæi“.
Mörg önnur fyrirtæki hafa einnig tekið ákvörðun um að sniðganga samfélagsmiðla til að þvinga þá til breytinga í meðhöndlun á hatursræðu. Coca-Cola ætlar að nota hléið til að „endurmeta vinnureglur sínar varðandi auglýsingar til að sjá hvaða breytinga er þörf“ segir Quincey.
Fyrirtækið er stór aðili á auglýsingamarkaði um allan heim. Það segir að hléið þýði ekki að fyrirtækið gangi til liðs við hreyfinguna sem berst fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum og almennum réttindum fólks. Í umræddri hreyfingu er meðal annars hin stóra mannréttindahreyfing NAACP. Hreyfingin hefur hvatt fyrirtæki til að hætta að auglýsa á Facebook undir myllumerkinu #StopHateForProfit. Markmiðið er að þrýsta á að betra eftirlit og stjórn verði höfð á hópum sem hvetja til haturs, kynþáttaníðs og ofbeldis á samfélagsmiðlum.
Matvælaframleiðandinn Unilever, sem framleiðir meðal annars Lipton te og Ben & Jerry‘s ís hefur tilkynnt að fyrirtækið ætli að hætta að auglýsa á Facebook, Twitter og Instagram í Bandaríkjunum og gildir ákvörðunin út árið.