fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Rússneska leyniþjónustan heitir Talibönum verðlaunum fyrir að drepa erlenda hermenn í Afganistan

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 28. júní 2020 11:30

Frá Afganistan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneska leyniþjónustan hefur heitið vígamönnum Talibana verðlaunum fyrir að drepa hermenn úr liði bandamanna í Afganistan, þar á meðal eru bandarískir hermenn og hermenn frá nokkrum Evrópuríkjum.

New York Times skýrir frá þessu og hefur eftir bandarískum embættismönnum. Upplýsingarnar hafa ekki fengist staðfestar opinberlega og yfirvöld í Rússlandi og Bandaríkjunum hafa neitað að tjá sig um þær og Talibanar sömuleiðis.

Fram kemur að það sé sérstaklega ein deild rússnesku leyniþjónustunnar sem sjónir manna beinist að en hún er sögð hafa heitið verðlaunum fyrir dráp á hermönnum bandamanna á sama tíma og Bandaríkin og Talibanar hafa reynt að semja um frið í þessu stríðshrjáða landi. Þessi sama deild hefur áður verið tengd við morðtilraunir og aðrar aðgerðir, sem þola illa dagsljós, í Evrópu. Markmiðið er sagt vera að raska því jafnvægi sem ríkir á Vesturlöndum.

New York Times hefur eftir heimildarmönnum sínum að Talibönum og/eða glæpamönnum, sem tengjast hryðjuverkasamtökunum, hafi verið boðnir peningar fyrir að drepa hermenn bandalagsþjóðanna og að þeir hafi fengið hluta af peningunum greidda.

Vitað er að 20 bandarískir hermenn voru drepnir í Afganistan á síðasta ári. Ekki liggur fyrir hvaða dráp tengjast verðlaunafénu.

Donald Trump og ríkisstjórn hans hafa að sögn fengið upplýsingar um málið og hvernig sé hugsanlega hægt að bregðast við en enn hefur ekki verið tekið ákvörðun um hvernig verður brugðist við.

Ef upplýsingar New York Times eru réttar þá þýðir það að „skuggahernaður“ Rússa gegn Vesturlöndum er kominn á nýtt stig. Í „skuggahernaði“ eru tölvuárásir, rangar fréttir og leynilegar aðgerðir mikilvægustu þættirnir.

Hvíta húsið þvertekur fyrir að Trump hafi fengið upplýsingar um málið og segir að Mike Pence, varaforseti, hafi heldur ekki fengið þær.

Sky hefur eftir breskum leyniþjónustumönnum að upplýsingar New York Times séu réttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?