fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Hún var myrt af eiginmanninum og tengdafjölskyldunni – Dómurinn vekur mikla reiði

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 26. nóvember 2020 06:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr á árinu var kveðinn upp dómur af dómstól í Shandong héraðinu í Kína sem hefur vakið mikla reiði og hneykslun meðal almennings. Svo mikil var úlfúðin að dómstóllinn sá sig tilneyddan til að senda frá sér yfirlýsingu og hvetja fólk til að sýna stillingu. Málið, sem dómurinn féll í, snýst um unga konu sem var myrt af eiginmanni sínum og tengdafjölskyldu.

Konan, sem var 22 ára, hafði aðeins verið gift í sex mánuði þegar eiginmaður hennar og tengdafjölskyldu lömdu hana til bana af því að hún hafði ekki getað eignast barn. Xinhua ríkisfréttastofan skýrði frá þessu.

Í frétt Xinhua segir að konan hafi látist þann 31. janúar á síðasta ári. Fyrir dómi kom fram að eiginmaður hennar og tengdafjölskylda hennar hafi farið illa með hana, gengið í skrokk á henni. Neitað henni um mat og látið hana dvelja utanhúss í vetrarhörkum. Allt hafi þetta verið gert til að refsa henni.

Í janúar var fólkið sakfellt fyrir misþyrmingar en það er það ákæruatriði sem yfirleitt er notast við þegar um ættingja eða fólk úr sömu fjölskyldu og fórnarlambið er að ræða. Hámarksrefsingin við slíku broti er sjö ára fangelsi. Eiginmaðurinn og tengdafjölskyldan voru síðan dæmd í tveggja til þriggja ára fangelsi. Dómurinn ákvað að milda refsinguna þar sem „að allir sakborningarnir skýrðu satt og rétt frá málsatvikum, játuðu sök og iðruðust“ að því er sagði í umfjöllun ríkisdagblaðsins People‘s Daily.

CNN segir að dómurinn hafi vakið upp mikla úlfúð um allt land og heitar umræður um það samfélagslega vandamál sem ofbeldi gegn konum er. Dómstólnum var fyrirskipað að taka málið aftur til meðferðar í apríl en það varð ekki til að lægja öldurnar og í síðustu viku fór dómstóllinn þá óvenjulegu leið að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

Á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo hefur myllumerki málsins verið skoðað 290 milljón sinnum og margir hafa tjáð sig um það og lýst yfir hneykslun sinni og vonbrigðum.

„Þessi ofbeldismaður hlaut vægan dóm því hann klæddist skikkju hjónabandsins,“ skrifaði einn notandi. Aðrir hafa lýst yfir reiði sinni yfir dómskerfinu og samfélagsuppbyggingunni sem haldi áfram að bregðast konum. Svo virðist sem dómskerfið afsaki ofbeldi karla gagnvart konum. Aðrir bentu á misræmið í refsingum þar sem þungar refsingar liggi við smávægilegum brotum. Var þar sem dæmi nefnt að fyrir fimm árum var unglingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir fyrir að hafa selt eftirlíkingu af skammbyssu. Dómurinn var síðan mildaður í sjö ára fangelsi.

„Að selja leikfangabyssur og skrifa stuttar klámbækur varðar 10 ára fangelsi. Er mannslíf svo lítils virði?“ spurði einn notandi Weibo.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?