fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Spáir óvæntum úrslitum í forsetakosningunum – Spáði rétt um úrslitin í 49 af 50 ríkjum síðast

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 27. október 2020 07:00

Biden er kominn í kosningaham gegn Trump

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden, frambjóðandi Demókrata, er með gott forskot á Donald Trump, sitjandi forseta og frambjóðanda Repúblikana, í baráttunni um forsetaembættið miðað við skoðanakannanir. En tölfræðingurinn og prófessorinn Bela Stantic, sem segist ekki hafa hundsvit á pólitík, spáir Trump sigri. Þetta byggir hann á greiningu á milljónum tísta á Twitter og viðbrögðum við þeim

News.com.au skýrir frá þessu. Fram kemur að Stantic spái því að Trump fái 270 kjörmenn og byggir hann það á því að Trump muni sigra í sveifluríkjunum svokölluðu og því skipti engu máli þótt Biden fái fleiri atkvæði í heildina, eins og Hillary Clinton gerði í kosningunum 2016 en hún fékk rúmlega einni milljón fleiri atkvæði en Trump en bara í „röngum“ ríkjum.

Stantic kom með nýja spá um úrslitin í síðustu viku eftir síðari kappræður Biden og Trump og veikinda Trump af völdum COVID-19. Hann byggði spá sína á úrslitum í sveifluríkinu Flórída.

„Staðan hefur ekki breyst frá því í síðasta mánuði en Trump hefur í raun styrkt stöðu sína í Flórída. Það er ástæða til að ætla að það sé þróun sem einnig eigi við í öðrum ríkjum,“

sagði Stantic.

Það er kannski ástæða til að taka mark á spá hans því fyrir kosningarnar 2016 spáði hann rétt fyrir um úrslitin í 49 ríkjum af 50. Hann spáði einnig fyrir um sigur Brexitsinna í kosningunum um Brexit á sínum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug