Nýliðið sumar var það hlýjasta á norðurhveli jarðar frá upphafi mælinga. Þetta kemur fram í gögnum bandarísku haf- og loftslagsstofnunarinnar NOAA. Í júní, júlí og ágúst var hitinn 1,17 gráðum yfir meðalhita síðustu aldar.
The Guardian skýrir frá þessu. Einnig kemur fram að ágúst hafi verið sá næsthlýjasti frá upphafi mælinga en þær hafa staðið yfir í 141 ár. NOAA segir að tölurnar þýði að 2020 sé á góðri leið með að verða eitt af hlýjustu árunum frá upphafi mælinga.
Tímabilið frá janúar og út ágúst er það hlýjasta frá upphafi mælinga í Evrópu, Asíu og Karabískahafinu en það næsthlýjasta í Suður-Ameríku.
Sumarið var einstaklega hlýtt á vissum svæðum og má þar nefna að í norðanverðu Rússlandi var meðalhitinn tveimur gráðum yfir meðaltali. Sömu sögu er að segja frá suðvestur- og norðausturhluta Bandaríkjanna. Í norðurhluta Asíu var meðalhitinn í júní, júlí og ágúst þremur gráðum yfir meðaltali.
Á norðurheimskautasvæðinu var sömu sögu að segja. Á Svalbarða var hlýjasta sumar sögunnar frá upphafi mælinga og mældist til dæmis rúmlega 21 gráðu hiti þar dag einn í júlí.