fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Nýtt úrræði í baráttunni við mýflugur – Vara við „Jurrassic Park tilraun“

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 31. ágúst 2020 19:00

Mýfluga. Mynd:Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Flórída hafa veitt heimild til að 750 milljónum erfðabreyttra mýflugna verði sleppt lausum í ríkinu. Markmiðið með þessu er að draga úr fjölda mýflugna sem bera sjúkdóma á borð við zikaveiruna og beinbrunasótt með sér.

BBC skýrir frá þessu. Segir miðillinn að umhverfisverndarsamtök séu allt annað en sátt við þetta. Þau vara við ófyrirséðum afleiðingum á vistkerfið og að úr þessu verði til stökkbreyttar mýflugur sem verði ónæmar fyrir skordýraeitri.

Fyrirtækið Oxitec, sem stendur á bak við verkefnið, fullyrðir að engin áhætta felist í að sleppa mýflugunum lausuum. Allir vilji vernda fólk gegn sjúkdómum á borð við beinbrunasótt og zikaveirunni sem flugurnar geta borið með sér.

Yfirvöld veittu heimild til að sleppa 750 milljónum fluga lausum á tveimur árum og verður hægt að hefjast handa við það á næsta ári.

Samtökin International Center for Technology Assessment and Center for Food Safety telja að þetta sé of áhættusamt.

„Í ljósi allra þeirra vandamála sem landið okkar og Flórída glíma nú við – kórónuveiru, kynþáttamismunun, loftslagsbreytingar – hafa stjórnvöld eytt skattfé og úrræðum í Jurassic Park tilraun,“

sagði Jaydee Hanson, forstjóri samtakanna, að sögn National Post.

Erfðabreytta mýið er að sögn BBC af tegundinni Aedes aegytpi og hefur fengið heitið OX5034. Þessi tegund er þekkt fyrir að bera marga banvæna sjúkdóma með sér. Samkvæmt áætlun á aðeins að sleppa karldýrum lausum sem eiga síðan að parast við kvendýr en það eru bara þau sem stinga fólk. Við pörunina munu karldýrin sprauta skaðlegu prótíni með í kvendýrin en þetta prótín mun erfast til afkvæmanna og drepa þau áður en þau verða nógu gömul til að stinga fólk. Með þessu á að fækka flugunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman