fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Segja að Joe Biden ætli að sækjast eftir að verða forsetaframbjóðandi demókrata

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 20. mars 2019 05:59

Joe Biden

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden, sem var varaforseti á valdatíð Barack Obama, hyggst sækjast eftir að verða forsetaframbjóðandi demókrata í forsetakosningunum á næsta ári. Hann þarf þó að afla sér drjúgra upphæða í kosningasjóð til að geta keppt um hnossið.

The Wall Street Journal skýrir frá þessu. Blaðið segir að Biden hafi sagt nokkrum stuðningsmönnum sínum að hann hafi í hyggju að bjóða sig fram. Þá talaði hann af sér á fundi með demókrötum í Delaware um helgina. Þá sagði hann að „hann væri framsæknastur þeirra sem bjóða sig fram“. Þegar áheyrendur fögnuðu þessu leiðrétti hann sig og sagði „allra þeirra sem hugsanlega bjóða sig fram“.

The Wall Street Journal segir að Biden hafi sett sig í samband við marga stuðningsmenn sína því hann þarfnist aðstoðar við að safna fé í kosningasjóð. Hann er sagður hafa hringt í að minnsta kosti sex manns í gær og sagt þeim að hann hyggist bjóða sig fram en þarfnist aðstoðar við fjáröflun.

Biden hefur ekki staðfest framboð opinberlega en samt sem áður er hann efstur í skoðanakönnunum um fylgi þeirra demókrata sem hugsanlega munu keppa um að verða forsetaframbjóðandi flokksins.

Á fyrrnefndum fundi um síðustu helgi sagði Biden að forsetakosningarnar 2020 séu þær mikilvægustu í Bandaríkjunum öldum saman.  Ef hann sigrar og verður kjörinn forseti verður hann 78 ára þegar hann tekur við völdum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“