fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Sjötugur barnaníðingur dæmdur til ótímabundinnar vistunar í fangelsi

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. desember 2019 08:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eystri-Landsréttur í Danmörku staðfesti í gær dóm undirréttar í Kaupmannahöfn um að hinn sjötugi Finn Jørgensen skuli vistaður um óákveðinn tíma í fangelsi. Þetta er þyngsta mögulega refsing sem hægt er að dæma fólk í samkvæmt dönsku hegningarlögunum.

Finn var fundinn sekur um fjölda kynferðisbrota gegn börnum á Indlandi og Sri Lanka. Brot Finn stóðu yfir frá 1996 til 2018. Á þessum tíma braut hann gegn fjölda drengja, undir 15 ára aldri, í hótelherbergjum í báðum löndunum.

Það var kanadíska lögreglan sem kom þeirri dönsku á slóð Finn. Hún fann mynd þar sem drengur stóð fyrir framan gardínu með mynd af Pókemonpersónunni Picachu. Lögregluaðgerðin var því nefnd „Aðgerð Picachu gardínan“.

Belgíska og danska lögreglan tóku einnig þátt í henni en margar klámmyndir til viðbótar fundust við rannsókn málsins. Finn var með rúmlega 8.000 barnaklámsljósmyndir í vörslu sinni og rúmlega 1.500 hreyfimyndir. Þessu myndefni deildi hann á hinum ýmsu miðlum. Með mörgum myndanna fylgdi textinn: „Finn Jørgensen“ og það auðveldaði rannsókn lögreglunnar mikið.

Finn var handtekinn á Kastrupflugvellinum í maí 2018 þegar hann kom heim eftir dvöl á Indlandi. Hann hafði áður hlotið tvo dóma fyrir álíka afbrot á tíunda áratugnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn