fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Leyfið börnunum að koma til Ásmundar

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 23. september 2018 14:30

Svarthöfði er eitt helsta illmennið í Stjörnustríðsbálknum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði hjó eftir því í vikunni að Ásmundur Einar Daðason hefði verið gerður að nýjum félags- og barnamálaráðherra og óskar honum innilega til hamingju með það. Ásmundur er vel að því kominn. Svarthöfði er ekki alveg með það á hreinu að hvaða leyti málefni barna voru ekki undir hans umsjón fyrir þennan nýja titil. En það gildir einu. Vonandi fær hann feita launahækkun fyrir að bæta þessu við sig.

Ásmundur er í rauninni sérstaklega hentugur barnamálaráðherra. Hann er kallaður Dalafressinn og klæðist stundum grænum og mjög líflegum jakkafötum. Börnin tengja við þetta.

Svarthöfði hefur einnig tekið eftir vaxandi óánægju almennings með Krakkafréttirnar á RÚV. Eða allavega óánægju Möggu Frikka og Jóns Vals Jenssonar með þær. Það sér hvert mannsbarn að einhver Göbbels uppi í Efstaleiti notar barnaefnið til að menga ómótaðar barnssálir til að skapa framtíðar herskara „rétthugsandi“ fólks.

Nú er lag, að mati Svarthöfða, að ríkisstjórnin láti sverfa til stáls og hreinsi út liðið sem stýrir barnaefninu. Þessir smákóngar á RÚV hafa allt of lengi fengið að stunda sinn heilaþvott óáreittir.

Ásmundur sjálfur ætti í krafti sinnar nýju stöðu að fá að stýra barnaefninu milliliðalaust og er borðleggjandi að hann myndi leika í því sjálfur. Krakkafréttirnar ætti auðvitað leggja niður enda þurfa börn ekkert að vita hvað er að gerast í samfélaginu. Svarthöfði sér fyrir sér að Ásmundur verði með vikulegan söngþátt fyrir börnin með frumsömdu efni. Hann yrði ekki lengi að hrista fram úr erminni lög á borð við „Allir eru að fá sér“, „Vegurinn heim til mín“, „Skattar hafa verið greiddir“, „Gubbulagið“ og „Þórólfur á mig.“ Ásmundur gæti annaðhvort spilað undir á kassagítar eða rappað þetta eins og er nýmóðins.

Fleiri ráðherrar mættu bæta titlum við sig. Til dæmis Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þetta er allt of þjált og hún getur vel bætt við sig tveimur til þremur stólum. Einnig Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ráðherra norrænna samstarfsmála.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“