

Margt benti til þess að Valdimar yrði áfram bæjarstjóri í Hafnarfirði eftir sveitarstjórnarkosningarnar enda hélt meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks velli. Það breyttist hins vegar í síðustu viku þegar Sjálfstæðismenn ákváðu að slíta viðræðum við Framsókn á þeim forsendum að Valdimar hefði gerst sekur um trúnaðarbrest. Hafa Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Viðreisn ákveðið að mynda meirihluta saman.
„Kæru Hafnfirðingar. Nú líður að því að ég láti af starfi sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Það hafa verið í senn forréttindi og heiður að fá tækifæri til að gegna þessu starfi. Í umboði ykkar og fyrir ykkur. Ég geng stoltur frá borði. Stoltur af því hvernig ég tókst á við þetta skemmtilega verkefni, stoltur yfir því að hafa náð að breyta ásýnd bæjarstjórastarfsins og færa það nær fólkinu en fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það eitt að hafa fengið að starfa með og fyrir ykkur,“ segir hann meðal annars og ræðir svo atburði síðustu daga lauslega.
„Síðustu dagar hafa verið krefjandi. Margt sem hefur verið sagt um mig og mína persónu. Orð sem ég tek að sjálfsögðu nærri mér. En allir hafa rétt á sinni skoðun og að tjá hana. Ég sjálfur hef tamið mér það að sýna öllum virðingu í orði og verki, ég er orðvar og legg áherslu á heiðarleika og einlægni. Það eru eiginleikar sem ég er stoltur af og hafa einkennt öll mín störf hvort sem það er skólastjóri, bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri.“
Valdimar bendir á að Framsóknarflokkurinn hafi unnið góðan sigur í kosningunum þann 16. maí og bætt við sig 11% fylgi og einum borgarfulltrúa. „Framsókn mun halda áfram að vinna vel og af heilindum fyrir ykkur. Því getið þið treyst,“ segir hann.
Hann óskar svo nýjum meirihluta og verðandi bæjarstjóra alls hins besta í þeirra störfum.
„Við erum öll saman í þessu verkefni en það er að vinna vel fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Framundan hjá mér er kærkomið nokkurra vikna frí. Ég ætla að nýta það frí vel, nýta tímann með mínu nánasta fólki, konunni minni, börnunum mínum og barnabörnum. Ég veit að það bíða mín spennandi verkefni handan við hornið. Nýr kafli að hefjast, kafli sem ég hlakka til að takast á við. Ég kveð ykkur með hlýju, virðingu og bjartsýni fyrir hönd Hafnarfjarðar. Ég mun halda áfram að vera út um allt í Hafnarfirði með ykkur Hafnfirðingum enda hvergi betra að vera.”
Fjölmargar athugasemdir hafa verið skrifaðar við færslu Valdimars og eru þær flestar á einn veg. Þar er bæjarstjóranum þakkað fyrir góð störf og segjast margir munu sakna hans eins og meðfylgjandi athugasemdir sýna.
„Það verður mikil eftirsjá af þér. Takk fyrir öll þín góðu verk.“
„Þú getur verið stoltur af allri þinni vinnu hingað til fyrir Hafnarfjörð, vinur minn.“
„Þín valdatíð hefur boðið af sér góðan þokka. Góða lukku áfram!“
„Hefur staðið þig ótrúlega vel og mátt ganga stoltur frá borði!!“
„Einmitt þessi orð lýsa því hvaða gull þú ert af manni. Takk fyrir þín störf sem bæjarstjóri og þá natni, auðmýkt og hlýju sem þú lagðir í embættið og fyrir Hafnarfjörð allan.“
„Besti bæjarstjórinn. Gangi þér allt í haginn í framtíðinni.“
„Mikill missir.“