

Sorkin, sem er einn af þáttastjórnendum viðskiptaþáttarins Squawk Box á CNBC, lét ummælin falla í viðtali við Lesley Stahl í fréttaskýringarþættinum 60 Minutes. Þar sagðist hann óttast að Bandaríkin gætu verið að feta sömu slóð og leiddi til hrunsins á Wall Street árið 1929.
„Svarið er: Við munum fá hrun,“ sagði Sorkin þegar hann var spurður hvort annað stórt markaðshrun gæti verið fram undan. „Ég get bara ekki sagt hvenær það verður eða hversu djúpt það verður. En ég get fullvissað þig um það – og ég vildi að ég þyrfti ekki að segja þetta – að hrunið mun koma.“
Sorkin varði áratug í að rannsaka fjármálahrunið 1929 og var afraksturinn bók sem kom út í fyrra og vakti talsverða athygli. Hann segir að ákveðin hættumerki séu farin að birtast á ný. Sérstaklega nefndi hann að traust geti horfið mjög hratt af mörkuðum.
„Þegar traustið hverfur, gerist það svona,“ sagði hann og smellt fingrum til áherslu.
Ummæli Sorkins hafa vakið talsverða athygli í bandarískum viðskiptaheimi, ekki síst vegna þess að hann hefur lengi verið talinn einn áhrifamesti viðskiptafréttamaður landsins og haft náin tengsl við bæði Wall Street og æðstu stjórnendur stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna.
Í viðtalinu lýsti hann einnig miklum ótta meðal forstjóra stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna, einkum í tæknigeiranum. Að hans sögn óttast margir að verða fyrir pólitískum hefndum ef þeir gagnrýna Donald Trump forseta eða stefnu stjórnar hans opinberlega.
„Flestir forstjórar í Bandaríkjunum í dag eru mjög hræddir við að tjá sig opinberlega,“ sagði hann. „Þeir hafa áhyggjur af því að verða skotmörk stjórnvalda eða að hugsanlegir samrunar og önnur viðskipti þeirra verði stöðvuð af eftirlitsstofnunum.“
Lesley Stahl benti á að sumir hagfræðingar teldu ólíklegt að Trump myndi leyfa alvarlegu markaðshruni að eiga sér stað, þar sem forsetinn hefði ítrekað tengt eigin velgengni við þróun hlutabréfamarkaða.
Sorkin sagðist þó ekki sannfærður um að slíkt væri næg trygging.
„Það er erfitt að vita hvernig hlutirnir fara úr böndunum,“ sagði hann. „Saga fjármálamarkaða sýnir að þegar óvissa og vantraust magnast getur þróunin orðið mjög hröð.“