
Lögreglan hefur í dag rannsakað alvarleg atvik í fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, en atvikin hafa vakið töluverðan óhug fólks, ekki síst vegna óvissu fram eftir degi um hvað hefði átt sér stað. Gilti það meðal annars um íbúa í stigaganginum, sem ekki gátu fengið að vita hvað hefði gerst en var sagt að halda kyrru fyrir á heimilum sínum eftir að lögregla afgirti svæði í kringum húsið.
Núna liggur fyrir að enginn lét lífið en maður sem var leiddur burtu í járnum frá vettvanginum er grunaður um að hafa skotið annan mann í höndina. Sá maður var fluttur á sjúkrahús og eru áverkar hans ekki taldir lífshættulegir.
Atvikin komu íbúa í húsinu, sem DV ræddi við, í opna skjöldu, og sagði viðkomandi að ekkert hefði verið í gangi sem gaf fyrirheit um atvik sem þessi. Segir íbúinn að rólegt hafi verið í stigaganginum og lítið um ónæði.
DV hefur ekki upplýsingar um þjóðerni þeirra manna sem í hlut áttu en tveir íbúar í húsinu sem rætt var við í dag eru Íslendingar.
Lögregla naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðir í dag. Um tíma voru sex lögreglubílar og þrír sérsveitarbílar á vettvangi auk tveggja sjúkrabíla. Einnig var eitthvað um ómerkta lögreglubíla. Er leið á daginn minnkaði viðbúnaður lögreglu en tæknideild hélt áfram störfum.