

Ari segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hann telji liggja í augum uppi að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun tveggja flokka meirihluta í samræmi við niðurstöðu kosninganna um helgina.
Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur og fékk 32,9% atkvæða en Miðflokkur fékk 11,4% atkvæða. Saman gætu þessir tveir flokkar myndað meirihluta með samtals 12 borgarfulltrúa.
Í samtali við Morgunblaðið segir Ari að Miðflokkurinn muni standa við sín kosningaloforð.
„Við verðum að vinna á grundvelli þeirra áherslna sem kjósendur kusu okkur út á. Þess vegna útilokaði ég samstarf við Samfylkinguna, þar er of langt á milli en að öðru leyti hef ég ekkert útilokað.“
Í blaðinu er einnig rætt við Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, sem segist vel geta hugsað sér samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki.
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, segir að sama skapi að hann vilji frekar vera í meirihluta en minnihluta og hann geti hugsað sér að vinna aftur með Björgu sem var aðstoðarmaður hans þegar hann var borgarstjóri. Bendir Einar á að Framsókn hafi ekki útilokað neinn flokk nema Samfylkingu.