fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. maí 2026 10:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV um lóðir í borginni sem hafa verið nýttar undir bensínstöðvar en eiga að vera nýttar fyrir annars konar byggingar í framtíðinni. Segir hún ekkert nýtt í frétt RÚV og veltir fyrir sér hvort með fréttaflutningnum sé verið að reyna að hafa áhrif á niðurstöðu borgarstjórnarkosninganna á laugardag.

Vísar Dóra Björt þar til fréttar RÚV í fyrradag en María Sigrún Hilmarsdóttir gerði fréttina en hún hefur áður fjallað um meðferð borgaryfirvalda á málum sem snúa að bensínstöðvalóðum í borginni sem nýta á undir annars konar húsnæði í framtíðinni. Í fréttinni segir meðal annars:

„Lóð sem áður var bensínstöðvarlóð og Reykjavíkurborg afhenti Olís með byggingarrétti endurgjaldslaust hefur margfaldast í verði. Borgin samþykkti framsal lóðarinnar frá félagi sem tengist olíufélaginu til byggingarverktaka. Virði lóðarinnar jókst um rúman hálfan milljarð króna á 20 mánuðum án þess að nokkrar framkvæmdir hæfust á reitnum.“

Umrædd lóð er við Egilsgötu en í fréttinni er einnig fjallað um bensínstöðvalóðirnar almennt. Er rifjað upp að um sé að ræða lóðir þar sem bensínstöðvar eigi að víkja og að lóðirnar hafi verið afhentar olíufélögum, með byggingarrétti, án endurgjalds.

Dóra Björt reið

Í pistli á Facebook segir Dóra Björt að ekkert réttlæti birtingu þessarar fréttar svo skömmu fyrir kosningar og segist velta fyrir sér hvort RÚV sé í kosningabaráttu fyrir Sjálfstæðisflokkinn:

„Sex dögum fyrir kosningar er bensínstöðvamálið blásið upp á ný, án þess að nokkuð nýtt hafi komið fram. Engin ný gögn. Engar nýjar ákvarðanir. Óháð því hvað fólki finnst um þessa samninga sem hafa verið til skoðunar eins og fjallað hefur verið ítarlega um þá er ekkert sem réttlætir þessa viðkvæmu tímasetningu. Nánast eins og fréttin hafi legið tilbúin í skúffu mánuðum saman og einfaldlega verið dregin fram á nákvæmlega ,,rétta“ augnablikinu.“

Segir hún lóðina á Egilsgötu hafa verið í uppbyggingu mánuðum saman, ef ekki lengur, og skipulagið afgreitt löngu áður en skýrsla um bensínstöðvalóðirnar leit dagsins ljós. Annað skipulag bensínstöðvalóða hafi beðið. Þar með sé engin frétt til staðar:

„Tímasetningin er fréttin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð verið duglegur við að moka drullu inn í lokasprett kosningabaráttu. Það sem stingur núna er að ríkisfjölmiðillinn virðist ekki aðeins hlaupa með þá bolta heldur jafnvel sparka þeim af stað sjálfur, þrátt fyrir að ekkert nýtt liggi fyrir sem réttlætir nákvæmlega þessa tímasetningu.“

María

Segir Dóra Björt að í þessu samhengi skipti máli hver tengsl Maríu Sigrúnar við Sjálfstæðisflokkinn eru en fréttakonan sé tengd hörðum gagnrýnendum meirihluta borgarstjórnar fjölskylduböndum. Sigurður Örn bróðir Maríu Sigrúnar er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og hefur í vetur leyst Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur af á þingi. Fyrrverandi eiginmaður og barnsfaðir Maríu Sigrúnar er Pétur Árni Jónsson, aðaleigandi útgáfufélags Viðskiptablaðsins, fjölmiðils sen hefur haldið uppi harðri gagnrýni á meirihluta borgarstjórnar og mælt fyrir hægri sinnuðum áherslum í stefnu hins opinbera.

Dóra Björt fullyrðir þó ekki að þessi tengsl hafi ráðið för hjá fréttakonunni:

„Það þarf ekki að þýða neitt eitt og sér en hjá ríkisfjölmiðli ætti einmitt að ríkja sérstök meðvitund um trúverðugleika, hlutleysi og það hvernig svona blasir við almenningi.“

Hún segir ábyrgðina þó ekki liggja hjá Maríu Sigrúnu einni:

„En ábyrgðin stoppar ekki hjá einstökum fréttamanni. Ritstjórn kvöldfréttanna tekur endanlegar ákvarðanir um hvað fer í loftið, hvenær og með hvaða áherslum. Þess vegna vakna líka spurningar um hvort ritstjórnin hafi einfaldlega látið þetta flakka athugasemdalaust, eða hvort ótti við enn eitt opinbert upphlaup um meinta ,,ritskoðun“ hafi orðið til þess að enginn þorði að stíga á bremsuna. Þegar RÚV ákveður að endurhita gamalt mál korteri fyrir kosningar án nýrra upplýsinga eða nýlegra atburða sem skýra tímasetninguna, þá er eðlilegt að fólk spyrji sig: Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“