fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 12. maí 2026 17:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun sem átti sér stað fyrir tæpum fjórum árum síðan eða aðfararnótt sunnudagsins 15. maí 2022 í Reykjavík.

Maðurinn er sakaður um að hafa, eftir að hann og konan hófu samræði með vilja beggja, beitt hana ofbeldi og ólögmætri nauðung og haft áfram við hana samræði og önnur kynferðismök án hennar samþykkis, með því að taka um háls hennar og þrengja að á meðan hún reyndi að fá hann til að láta af háttsemi sinni meðal annars með því að slá ítrekað í hann, slegið hana ítrekað í lærið, hrækt í andlit hennar, slegið hana utan undir og rifið í hár hennar, og sett getnaðarlim sinn inn í endaþarm hennar.

Brotaþoli hlaut roða og bólgu á hálsi, marbletti á vinstri upphandlegg, roða og bólgu á vinstra læri og grunna sprungu innanvert í endaþarmi.

Brotaþoli gerir kröfu um miskabætur að fjárhæð 3 milljónir króna og lögmannskostnaðar.

Aðalmeðferð verður við héraðsdóm Reykjavíkur 21. maí næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt