Karlmanni hefur verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til 26. maí vegna samfelldrar brotastarfsemi um tveggja ára skeið. Af úrskurðinum má ráða að maðurinn glími við alvarlegan áfengis- og fíknivanda, en brotin sem hann er grunaður um eru fjölmörg.
Elsta brotið sem er tilgreint í úrskurðinum átti sér stað í október árið 2022 en því er lýst með eftirfarandi hætti:
„Varnaraðili ákærður fyrir rán og nytjastuld, með því að hafa fimmtudaginn 20. október 2022, í félagi við einn þekktan aðila og einn óþekktan, brotist inn á heimili brotaþola, að […] í Reykjavík með því að sparka upp hurð að íbúðinni, beitt hann ofbeldi og hótunum, en varnaraðili lamdi brotaþola allt að fimm sinnum í andlitið með krepptum hnefa með þeim afleiðingum að hann hlaut sár á hægri kinn, sprungu í vör, heilahristing og flísaðist úr tönn, hótaði honum og fjölskyldu hans lífláti og að kveikja í hundi hans, þá henti varnaraðili síma brotaþola, Iphone 14 Pro Max, í gólfið með þeim afleiðingum að hann brotnaði, og í félagi tóku þeir Macbook Pro 16“ M1 Pro tölvu, kveikjuláslykla af bifreið brotaþola með skráningarnúmerið […], 66° Norður úlpu, 14 karata gullhálsmen, 450-750 gr. gullkeðju, 75 gr. gullarmband, tvö pör af eyrnalokkum með hálfs karats demöntun, 550 gr. stálkeðju, Hermés belti, Apple Watch Ultra Trail Loop, sólgleraugu, þrjú Airpods Pro, Hilti skrúfubox, borbitabox, Hilti verkfærabox með borvél, reiðufé, Tag Heuer Aquaracer úr, Dolce Gabbana rakspíra, One Million rakspíra, Versace rakspíra og tvo Hugo Boss rakspíra, skemmdu úti- og innihurð, en verðmæti framangreindra muna er allt að kr. 5.480.655, og báru þeir þýfið út og inn í bifreið brotaþola og óku á brott.“
Síðan er maðurinn sakaður um fjölmörg brot, þá einkum búðarhnupl, sviptingarakstur og fíkniefnaakstur. Eins er hann þó sakaður um brot gegn valdstjórninni, brot gegn lögreglulögum, eignaspjöll og ítrekaðar líkamsárásir.
Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald með vísan til þess að maðurinn hefði verið nær óslitið í afbrotum frá 29. janúar 2025 til 30. mars 2026. Miðað við brotaferilinn var það mat lögreglu að yfirgnæfandi líkur væru á því að maðurinn myndi halda áfram að brjóta af sér ef hann væri frjáls ferða sinna. Auk þess var maðurinn á skilorði.
Dómari Héraðsdóms Reykjaness féllst á það með lögreglu að ætla megi að maðurinn haldi áfram að brjóta af sér og að yfirgnæfandi líkur séu á því að hann hafi brotið gegn skilorði sínu. Þar með væru forsendur til staðar fyrir gæsluvarðhaldi. Var manninum gert að sæta gæsluvarðhaldi fram til 26. maí og Landsréttur hefur nú staðfest úrskurðinn..
Ævintýralegur fjöldi brota á tveggja ára tímabili
Brotin sem talin eru upp í úrskurði héraðsdóms eru eftirfarandi en af þeim má sjá ákveðna stigmögnun og líklega einbeittan brotavilja, en stundum hnuplaði hann úr sömu versluninni oft á dag:
- 3. júlí 2024: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
- 31. júlí 2024: ók bifreið sviptur ökurétti
- 1. ágúst 2024: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna
- 13. október 2024: ók bifreið sviptur ökurétti og sinnti ekki merkjagjöf lögreglu
- 16. október 2024: steig á vélarhlíf bifreiðar á bifreiðarstæði í Kópavogi með þeim afleiðingum að dældir komu í hana.
- 16. nóvember 2024: braut rúðu í íbúð í Kópavogi með því að slá í hana með barefli.
- 29. janúar 2025: braut gegn lögreglulögum með því að reyna að flýja handtöku. Lögreglumenn þurftu að beita úða- og rafvopni til að yfirbuga manninn.
- 29. janúar 2025: brot gegn valdstjórninni er hann lokaði útidyrahurð á fót lögreglumanns við skyldustörf.
- 3. febrúar 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 2.439 kr.
- 15. mars 2025: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
- 14. apríl 2025: ók bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
- 22. apríl 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 2.479 kr.
- 5. maí 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 1.616 kr.
- 14. maí 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 1.014 kr.
- 26. maí 2025: stal 5 Viking Lite bjórdósum úr vínbúð ÁTVR í Smáralind. Verðmætið nam 2.295 kr.
- 21. júní 2025: braut gegn lögreglusamþykkt með óspektum á almannafæri fyrir utan skemmtistað í Reykjavík þar sem hann hellti bjór yfir lögreglubifreið.
- 6. júlí 2025: tók leigubíl frá Akranesi til Kópavogs og borgaði ekki. Ökugjaldið nam 33.500 kr.
- 24. ágúst 2025: gerði tilraun til þjófnaðar með því að reyna að brjótast inn í bifreiðar í bifreiðageymslu í Kópavogi. Var staðinn að verki af lögreglu.
- 30. ágúst 2025: olli skemmdum á bifreið við bifreiðastæði í Kópavogi með því að sparka í hurðir bifreiðarinnar svo að dældir og rispur komu í hana.
- 15. september 2025: tók leigubíl frá Engihjalla en borgaði ekki ökugjald að fjárhæð 3.000 kr.
- 18. september 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 1.297 kr.
- 16. september 2025: stal matvöru úr verslun Krónunnar í Hamraborg að verðmæti 799 kr.
- 18. september 2025: stal parmaskinku úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
- 30. september 2025: gripinn með 1,68 grömm af kókaíni í Garðabæ
- 30. september 2025: stal 5 Viking Lite bjórdósum úr vínbúð ÁTVR í Smáralind. Verðmætið nam 2.295 kr.
- 6. október 2025: stal bjórdós af gerðinni Viking Lite úr vínbúð ÁTVR í Kringlunni að verðmæti 459 kr.
- 16. október 2025: stal áfengisflösku að verðmæti 3.498 kr. úr vínbúð ÁTVR í Smáralind.
- 16. október 2025: stal áfengisflösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr úr vínbúð ÁTVR í Smáralind.
- 16. október 2025: stal áfengisflösku að verðmæti 2.148 kr. úr vínbúð ÁTVR í Smáralind.
- 19. október 2025: stal að verðmæti 955 kr úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
- 24. október 2025: stal tveimur áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 25. október 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 29. október 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr, úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 29. október 2025: stal áfengisflösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 29. október 2025: tilraun til þjófnaðar með því að stinga flösku inn á sig í vínbúð ÁTVR á Dalvegi en framvísaði flöskunni eftir að öryggisvörður hafði afskipti af honum.
- 29. október 2025: braut póstkassa á heimili fyrrum sambýliskonu sinnar.
- 30. október 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 3.548 kr. úr vínbúð ÁTVR í Skeifunni.
- 31. október 2025: stal matvöru að verðmæti 1.467 kr. úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
- 31. október 2025: stal matvöru að verðmæti 1.467 kr. úr verslun Krónunnar í Hamraborg.
- 1. nóvember 2025: stal 4 áfengisflöskum að verðmæti 11.684 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 1. nóvember 2025: stal 2 áfengisflöskum, Opal mix pela og Koskenkova pela, úr vínbúð ÁTVR í Smáralind. Verðmæti 5.488 kr.
- 1. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi. Verðmæti 4.586 kr.
- 1. nóvember 2025: brot gegn lögreglulögum með því að hafa fyrir utan ÁTVR að Dalvegi ekki sinnt fyrirmælum lögreglu en maðurinn hafði verið að reyna að komast inn í bifreiðar á stæðinu. Reif maðurinn sig í framhaldinu lausan við handtökuna og reyndi að hlaupa í burtu í átt að Smáratorgi en þá togaði lögreglumaður í hönd ákærða til að stöðva för hans og við það féllu bæði ákærði og lögreglumaðurinn niður bratta á bifreiðastæði og lenti lögreglumaðurinn á bifreið sem varð fyrir tjóni.
- 3. nóvember 2025: stal pela af gerðinni Koskenkorva vodka úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi. Verðmæti 2.149 kr.
- 5. nóvember 2025: stal 4 áfengisflöskum að verðmæti 4.586 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 5. nóvember 2025: stal 2 áfengisflöskum að verðmæti 4.698 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 5. nóvember 2025: stal vodka og bjórdós að verðmæti 2.518 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 6. nóvember 2025: stal flösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 6. nóvember 2025: stal flösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 7. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum að verðmæti 3.317 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 8. nóvember 2025: stal flösku af gerðinni Hot n’sweet að verðmæti 1.399 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 10. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum að verðmæti 4.067 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 10. nóvember 2025: stal 4 áfengisflöskum að verðmæti 4.586 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 11. nóvember 2025: stal 3 áfengisflöskum að verðmæti 4.067 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 10. nóvember 2025: stal pela af vodka af gerðinni Koskenkorva að verðmæti 2.668 kr. úr vínbúð ÁTVR að Dalvegi.
- 14. febrúar 2026: grunaður um húsbrot og hótanir með því að hafa brotist inn á heimili móður sinnar í Garðabæ og hótað henni lífláti.
- Ótilgreind dagsetning: Við flutning á lögreglustöð hótaði maðurinn lögreglumanni ítrekað lífláti og sagðist ætla að nauðga barni lögreglumannsins. Maðurinn sagðist líka hafa óþarflega mikla löngun til að sparka í andlit lögreglumannsins.
- 19. febrúar 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 3.307 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 21. febrúar 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 2.538 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- Ótilgreind dagsetning: maðurinn er grunaður um að hafa veist að einstaklingi með ofbeldi og mögulega brotið á hendi brotaþola.
- 11. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 2.538 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 14. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 4.596 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 18. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 18. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 18. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 19. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að verðmæti 5.136 kr. úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 19. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 20. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 23. mars 2026: grunaður um að hafa stolið áfengi að óþekktu verðmæti úr vínbúð ÁTVR á Dalvegi.
- 30. mars: grunaður um sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að konu, kastað henni til og tekið hana hálstaki.