fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Árni Stefán eys svívirðingum yfir starfsfólk MAST eftir aðgerðina í gær – „Það er búið að taka ALLT af mér sem skiptir mig máli“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögfræðingurinn Árni Stefán Árnason hefur undanfarið staðið í deilum við Matvælastofnun (MAST) vegna hundahalds þess fyrrnefnda. Fyrr í þessum mánuði hafði nágranni Árna Stefáns í sumarhúsabyggð í Kjós samband við MAST og lýsti áhyggjum af hundi sem þar væri í reiðuleysi. Hundurinn var einsamall í kuldanum og snjónum, vatns- og matarlaus. Hús Árna var mannlaust en hundurinn sat þar fyrir utan.

Árni Stefán lýsti því við DV að hafa týnt hundinum og í framhaldinu sakaði hann MAST um ofsóknir. Árni sendi DV yfirlýsingu þar sem hann útskýrði að MAST hafi vörslusvipt hann fjórum hundum. Hefur Árni farið hörðum orðum um stofnunina, bæði í áðurnefndri yfirlýsingu sem og í færslum á samfélagsmiðlum. Árni skrifar í dag:

„Eftir atburði gærdagsins hef ég algerlega misst trúna á réttarríkinu. Lögregla horfir upp á MAST stela af mér hundum. Lögregla horfir á hunda í topp ástandi sem ég er sakaður um af MAST með lygum að fara illa með. Ég bara spyr hvar er þingið og ég spyr á hvaða leið eru sumir dómarar. Allt þetta ógeð er í hreinni andstöðu við það sem ég lærði í sex ára laganámi um hvað lögfræði ætti að ganga út á. Sem betur fer á ég Landsrétt eftir, stefnumöguleika í ógildingarmáli. Ef ekkert gengur eftir flý ég Ísland og til Austurríkis og hleð hundum í kringum mig aftur. Þar getur þetta geðveika fólk hjá MAST ekki fróað sér lengur á illgirni í minn garð.

Ég bið ykkur öll um að leggjast á eitt og hjóla í þingmenn og atvinnuvegaráðherra og lýsa yfir ógeði á þessum vinnubrögðum. Það er gagnslaust að hafa samband við fjölmiðla, þeir halda allir með MAST þó ég sé með skotheld vottorð frá dýralækni um framúrskarandi hæfni mína til að sinna dýrum.“

Sjá einnig: Árni Stefán skrifar MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST

Árni lýsti því í gær að MAST hefði nú tekið allt frá honum sem máli skiptir, alla hundana og allar dúfurnar hans.

„Það er búið að taka ALLT af mér sem skiptir mig máli,“ skrifar Árni sem nafngreinir starfsmenn MAST sem hann segir hafa elt sig til Kjósar til að taka af honum dýrin.

„Þessu lagaákvæði var ekki beitt af því að MAST kann ekki lög um velferð dýra en þessu lagaákvæði hefði þurft að beita. Það hefði aldrei gengið því lögreglumennirnir hristu höfuðið þegar þeir sáu aðfarir MAST en gerðu ekkert – Ég afhenti hvern einasta hund og sýndi lögreglu og MAST að ekkert amaði að þeim og vottorð dýralæknis frá því í gær staðfesti það. Það breytti engu. KRAKKAR ÉG ÞARF HJÁLP NÚNA EN EKKI SAMÚÐ GETIÐI FARIÐ MEÐ ÞETTA Í FJÖLMIÐLA PLEASE.“

Sjá einnig: MAST á leiðinni að taka hund Árna Stefáns sem nágranni kom í skjól – „Það má alls ekki afhenda honum hundinn!“

Vísar Árni til ákvæðis úr lögum um velferð dýra en þar segir að þegar MAST telur að úrbætur þoli enga bið geti stofnunin tekið dýr úr vörslum umráðamanns eða aflífað dýr sem hafa orðið fyrir varanlegum skaða sökum vanfóðrunar, harðýðgi, slysa eða slæms aðbúnaðar. Slík aðgerð þurfi að vera í samráði við eða samkvæmt fyrirmælum lögreglu og er MAST ekki skylt að veita andmælarétt þegar úrbætur þola enga bið.

Yfirdýralæknir MAST, Þóra Jóhanna Jónasdóttir, lýsti því í samtali við RÚV fyrir helgi að færst hafi í aukana að starfsfólk verði fyrir áreitni við eftirlitsstörf og jafnvel ærumeiðingum á samfélagsmiðlum. Ákvörðun um að fjarlægja dýr af heimilum sé aldrei tekin af léttúð eða ástæðulaust. Þeir sem verða fyrir slíkum aðgerðum hafi rétt til að leita til æðra stjórnvalds á borð við ráðuneytið til að kæra ákvarðanir MAST. Það sé réttur farvegur fyrir umkvartanir frekar en að ráðast á starfsfólk sem er bara að vinna vinnuna sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum
Fréttir
Í gær

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
Fréttir
Í gær

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“