

Tilkynnt hefur verið í Skipulagsgátt um áform Veitna um að bora allt að sjö holur á nokkrum stöðum í Laugarnesi Reykjavík í leit að meira heitu vatni til að auka vinnslugetu svæðisins.
Fram kemur í kynningu á áformunum að ætlunin sé að bora allt að sjö vinnsluholur í Laugarnesi í Reykjavík; allt að fimm við Engjateig, eina í Lágmúla og eina í Bolholti. Fyrir séu borholur við Bolholt og Lágmúla en við Engjateig sé í gildi deiliskipulag sem heimili borun nýrra vinnsluhola.
Segir enn fremur að Laugarnessvæðið sé eitt af fjórum vinnslusvæðum lághita fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins. Vinnslan þar hafi verið í hámarki á árunum á milli 1980 og 1990. Eftir að Nesjavallavirkjun hafi farið í gang árið 1990 hafi létt talsvert á vinnslu í Laugarnesi eins og öðrum lághitasvæðum á höfuðborgarsvæðinu. Mesta ársmeðalvinnslan hafi verið árið 1983, 213 lítrar á sekúndu, samanborið við 133 lítra á sekúndu árið 2024. Ekki sé ætlunin að auka heildarvinnslu úr svæðinu umfram það sem mest hafi verið verið unnið.
Í fyrsta lagi sé markmiðið að endurheimta tapaða vinnslugetu í Laugarnesi. Vinnslugeta á svæðinu hafi minnkað síðustu ár þar sem eldri vinnsluholur hafi fallið úr rekstri án þess að nýjar hafi komið í staðinn. Hola R‑15 (við Lágmúla 2) hafi farið úr rekstri eftir að dæla féll ofan í hana og hún stíflast. Holur R‑05 (við Hátún 10) og R‑20 (við Bolholt 5) hafi tapað hluta vinnslugetunnar eftir eldri viðgerðir. Með nýjum borunum sé markmiðið að endurheimta þessa vinnslugetu.
Í öðru lagi þurfi að auka hámarksvinnslugetu svæðisins til að unnt sé að fullnýta heildarvinnslugetu þess. Vinnsla úr lághitasvæðum hafi minnkað yfir sumarmánuði vegna tilkomu jarðvarmavirkjana í Hengli og sumarhvíldar lághitasvæða. Til að fullnýta þá heildarvinnslu sem ljóst sé að svæðin þoli þurfi að auka hámarksvinnslugetu. Með öðrum orðum: hámarksvinnslugeta þurfi að aukast til að unnt sé að vinna það vatnsmagn sem fyrir liggi að kerfið ráði við.
Í þriðja lagi bæti aukin vinnslugeta rekstraröryggi hitaveitunnar gagnvart hvers kyns áföllum svo sem bilunum í búnaði eða lögnum og jarðhræringum. Með því að fjölga vinnsluholum myndu Veitur bæta áfallaþol sitt gagnvart slíkum atburðum.
Segir að lokum að Veitur og Orkuveitan telji að unnt sé að auka vinnslu í Laugarnesi um allt að 20 prósent miðað við vinnslu árið 2018. Matið byggi á líkanreikningum fyrir lághitasvæði höfuðborgarsvæðisins þar sem hermd hafi verið 20 prósent og 40 prósent vinnsluaukning fram til 2050 miðað við mánaðarmeðaltöl vinnslu 2018.
Með þessari tilkynningu er um leið lögð fram fyrirspurn til Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdin eigi að fara í umhverfismat.