fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Flest dauðaslysin á Norðurlöndum á Íslandi – Langflestir sem deyja í umferðinni eru karlmenn

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 13:30

Passið ykkur í umferðinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvergi á Norðurlöndum eru hlutfallslefa fleiri dauðaslys í umferðinni en á Íslandi. Ísland er eitt örfárra Evrópulanda þar sem dauðaslysum í umferðinni hefur fjölgað.

Þetta kemur fram í tölfræði frá Eurostat, tölfræðistofnun Evrópusambandsins.

Kemur fram að árið 2024 hafi 19.934 einstaklingar týnt lífinu í bílslysum á ESB og EES svæðinu. Það er fækkun um 2,2 prósent frá fyrra ári og annað árið í röð þar sem dauðaslysum í umferðinni fækkar í Evrópu.

Á undanförnum árum hefur dauðaslysum fjölgað í aðeins fimm ríkjum í Evrópu. Það er á Íslandi, Írlandi, Spáni, Sviss og Eistlandi. Hafa ber í huga að ferðamönnum hefur fjölgað mikið á Íslandi á þessu tímabili.

Undir meðaltali

Hlutfallslega eru flest dauðaslysin í Rúmeníu og Serbíu, það er 78 ár hverja milljón íbúa. Almennt séð er hlutfallið hærra í austur og suðurhluta álfunnar en í norður og vesturhlutanum.

Lægsta hlutfallið er í Noregi, aðeins 16 á hverja milljón. Í Svíþjóð eru það 20, Í Danmörku 24, í Finnlandi 32 og á Íslandi 34. Hlutfallið á Íslandi er mjög svipað og í til dæmis Þýskalandi, Spáni, Írlandi og Hollandi. Ísland er undir meðaltali í álfunni sem er 44 á hverja milljón.

Langflestir karlmenn

Karlmenn eru í miklum meirihluta þegar kemur að dauðsföllum í umferðinni, um þrír af hverjum fjórum sem deyja eru karlar. Á undanförnum tíu árum hefur dauðsföllum karla fækkað um 12,6 prósent en kvenna um 18,4 prósent.

31,1 prósent þeirra sem deyja í umferðinni eru á aldrinum 25 til 49 ára. 30,7 prósent eru 65 ára eða eldri.

Tæplega helmingur ökumenn eða farþegar í bílum

Flestir sem deyja eru annað hvort ökumenn eða farþegar í bílum, það er 43,6 prósent. 18,5 prósent eru ökumenn bifhjóla eða farþegar þeirra. 17,8 prósent eru gangandi vegfarendur og 9,9 prósent eru hjólreiðamenn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt