

Maður í Indlandi gróf upp systur sína og bar hana að banka til þess að sanna að hún væri dáin. Hann hafði ekki getað tekið út peninga af reikningi hennar.
Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.
Maðurinn, Jeetu Munda að nafni sem býr í Odisha héraði í austurhluta Indlands, hafði vikum saman reynt að taka peninga af bankareikningi látinnar systur hans. Hún átti 19.300 rúpíur á reikning, sem gera um 25 þúsund krónur.
Hafði starfsfólk Odisha Grameen bankans sagt honum að hann þyrfti að sýna einhver plögg, svo sem dánarvottorð. Virtist hann ekki skilja leiðbeiningarnar.
Þriggja kílómetra leið
Sjónvarpsstöðvar í Indlandi náðu myndum af því þegar Munda sást þann 27. apríl bera lík systur sinnar að útibúi Odisha Grameen bankans í Maliposi og leggja þar þar niður.
Hafði hann grafið líkið upp í örvæntingu sinni. En líkið var vafið í plastdúk og sást í bert bein á fótlegg hennar. Hafði hann borið líkið um þriggja kílómetra leið.
Í tilkynningu frá bankanum var atvikið mjög truflandi fyrir viðskiptavini og starfsfólk bankans. Var samstundis hringt á lögregluna.
Lögregla kom og ræddi við Munda sem útskýrði að hann vissi ekki um neina aðra leið til að sanna fyrir starfsfólki bankans að systir hans væri látin.
„Hann er ólæs ættbálkamaður og þekkir ekki reglur um löglega erfingja eða formlega farvegi,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Að sögn bankans hefur málið nú verið leyst og peningunum komið til réttmætra erfingja konunnar. Lík konunnar hefur verið grafið á sama stað á ný.